11.6.10

Nýr meirihluti

Mánudaginn 14. júní verður fyrsti bæjarstjórnarfundur nýs meirihluta í Sveitarfélaginu Vogum. Þrátt fyrir að ég hefði kosið að H-listinn fengi hreinan meirihluta er ég sátt við það samstarf sem nú er komið á. Í samstarfi þurfa báðir aðilar að gefa eftir en þrátt fyrir það tel ég að við í H-listanum höfum náð góðri lendingu í mörgum okkar megin stefnumálum.

Eirný Vals bæjarritari hefur þegið boð okkar um að verða bæjarstjóri næstu fjögur árin. Það finnast mér vera góðar fréttir og bind ég talsverðar vonir við samstarf við hana. Nú vona ég bara að íbúar sveitarfélagsins taki höndum saman og styðji okkur til góðra verka, en láti okkur jafnframt vita þegar við erum ekki að standa okkur. Ég hef trú á að það verði sveitarfélaginu fyrir bestu.

No comments:

Post a Comment