23.10.10

Fjárlaganefnd

Einu sinni á ári eru fulltrúar sveitarfélaganna boðnir á fund fjárlaganefndar til að gera grein fyrir sínum áherslumálum og freista þess að fjárlaganefnd veiti fé í verkefnin. Við í Sv. Vogum fórum á einn slíkan fund um daginn.

Það var talsverð öryggisgæsla í húsinu og við vorum látin bíða í sérstakri biðstofu á meðan starfsmenn undirbjuggu okkur og sögðu okkur frá því hverju fjárlaganefndin ætlast til af okkur (þetta var dálítið eins og bíða eftir sérfræðilækni á Landspítalanum). En allavega - þegar við komum inn sátu þar 7 alþingismenn, (misjaflega áhugasamir eins og gengur). Við gerðum grein fyrir málunum okkar og síðan spurðu alþingismennirnir okkur út í málin. Þá notaði einn þeirra tækifærið til að spyrja hvort okkur þætti ríkistjórnin ekki vera að standa sig illa í atvinnumálum og hvort við værum ekki ósátt við áhugaleysi ríkisstjórnarinnar í málefnum Suðurnesja.
Ég vissi bara ekkert hvað ég átti að segja fanst meira en lítið óþægilegt að vera orðinn þátttakandi í pólitískum deilum innan nefndarinnar (eða ég veit ekki hvað). Ég stundi því  upp að ég liti svo á að sveitarstjórnarmenn og alþingismenn væru að vinna saman að uppbyggingu samfélagsins eins vel og kostur væri. Líklega hefði ég getað sagt margt gáfulegra á þessari stundu - en ég hafði bara alls ekkert ráðrúm fyrir skapandi hugsun.

No comments:

Post a Comment