(Birtist á Smugunni 5.febrúar 2012)
Árið 2003 kynntist ég fyrst kenningum norska prófessorsins Dan Olweus um einelti í grunnskólum. Það ár var byrjað að vinna með hugmyndafræðina í grunnskóla þar sem ég var deildarstjóri og fékk ég það hlutverk að stjórna innleiðingu og eftirfylgni í skólanum. Kenningarnar ganga úr á að best sé að vinna gegn andfélagslegri hegðun í skóla með því að móta ný gildi í skólasamfélaginu. Útgangspunktur Olweusar er að þeir einstaklingar sem kjósa að koma sjálfum sér áfram með því að níðast á öðrum verði alltaf til í öllum samfélögum. Besta leiðin til að vinna gegn þeim er að breyta lögmálum samfélaga með því að virkja hinn þögula meirihluta og veitir þeim viðurkenningu og athygli sem vinna að hagsmunum heildarinnar.
Einstaklingar sem nota ofbeldi og leynd til að fá sínu fram eru oft sterkir innan bekkjarins og því þarf að þjálfa aðra nemendur sérstaklega í að berjast gegn hegðun þeirra. Til að fá hópinn til að taka afstöðu er rætt um aðstæður þeirra sem verða fyrir kúgun og ofbeldi. Haldnir eru bekkjarfundir til að ræða hvernig hægt er að leysa vandamál á uppbyggilegan hátt þannig að allir í hópnum njóti góðs af. Umræður og ólík sjónarhorn eru liður í lærdóms og þroskaferli þar sem flestar hliðar málsins eru dregnar fram. Eftir umræður og umhugsun mótar bekkurinn sínar eigin samskiptareglur og þá er kennarinn í lykilstöðu til að vernda reglur bekkjarins og sjá til þess að þær verði hluti af eðlilegum samskiptum innan bekkjarins. Kennarinn þarf að gefa skýr skilaboð og sjá til þess að hegðun sem brýtur gegn hugsjón bekkjarins sé í öllum tilvikum stöðvuð.
Þegar við innleiddum hugmyndafræði Olweusar sáum við að sumir krakkar blómstruðu í vinnunni. Þeir urðu hetjur bekkjarins og mikilvæg stoð fyrir þá sem að einhverjum orsökum stóðu höllum fæti. Þessir krakkar stóðu með þeim sem ráðist var á og voru lykilmenn í að viðhalda uppbyggilegu samfélagi innan bekkjarins. En hvernig mun þeim ganga í raunverulega lífinu?
Eftir tíu ára aðdáun á norskum fræðum Olweusar er ég farin að efast um að hægt sé að nota hana í Íslensku samfélagi. Barn sem alið er upp við að standa með þeim sem eru einir og segja frá þegar það verður vitni af hegðun sem vinnur gegn heildarhagsmunum hlýtur ekki sömu upphefð í íslensku samfélagi og í hugmyndafræði hins norska Olweusar.
Þessir krakkar geta líklega orðið kennarar eða unnið við ummönnun aldraðra en myndi einhver velja þá í stjórn lífeyrissjóða eða sem yfirmenn fjárstýringar? Gætu hetjur Olweusarsamfélagsins orðið farsælir forstjórar, bankastjórar eða stjórnmálamenn á Íslandi?
Er hægt að virkja hinn þögla minnihluta í íslensku samfélagi? Er hægt að breyta hugsjón og leikreglum íslenska samfélagsins eins og samskiptareglum bekkja er breytt inni í grunnskólunum? Er það kannski inntak þeirrar hugmyndar sem fórnarlömb bjartsýniskastsins 2009 kölluðum „Nýja Ísland“?
No comments:
Post a Comment