31.3.13

Álverið sem varð kísilver

Umræðan í páskaboðunum snýst um kísilver á Bakka og Vinstrihreyfinguna – grænt framboð. Það er mál manna að með kísilverinu  hafi hreyfingin svikið umhverfisstefnu sína og snúið sér að stóriðjustefnu sjálfstæðisflokksins, hugsanlega með von um að komast í stjórn með þeim eftir kosningar. Þetta er ekki sanngjarn málflutningur.
Hvernig væri umhverfismálum háttað ef Vinstri græn hefðu ekki verið í síðustu ríkistjórn. Þá væri hugsanlega risið álver bæði á Bakka og í Helguvík með milljarða kostnað fyrir ríkið. Þá hefði ekki verið lögð áhersla  á uppbyggingu nýsköpunar og hugvits á kjörtímabilinu, ekki verið lögð áhersla á uppbyggingu í landbúnaði og ferðaþjónustu og styrkir til að gera fyrirtæki vistvænni hefðu ekki verið veittir.
Á þingi er stuðningur við stóriðjustefnu Sjálfstæðisflokks og Framsóknar um 2/3. Að það hafi tekist í slíku ástandi að koma í veg fyrir Helguvíkurálver og minnkað álverið á Bakka niður í 50 MW kísilver er góður árangur. Til þess að breyta um stefnu í atvinnumálum þurfa Vinstri græn að fá meira fylgi og sterkari stöðu.  Það þarf að snúa af þeirri braut að erlend stórfyrirtæki séu hvött til að koma til Íslands til að fá ódýra orku og ódýrt vinnuafl.  Það á að vera öllum ljóst að framtíðarsýn um risavaxnar raflínur hringinn í kringum landið og stóriðjuver í hverjum firði verður að stöðva. Það er ekkert sjálfbært í slíkri framtíðarsýn og hún felur ekki í sér nokkra framþróun. Sú stefna er úrelt og hentar ekki íslensku samfélagi.
Við í Vinstri grænum megum vera hreykin af þeim árangri sem náðst hefur í umhverfismálum. Við höfum komið á nýjum náttúruverndarlögum, rammaáætlun, vistvænari samgöngum og öflugri almenningssamgöngum, ljósleiðaravæðingu á stórum hluta landsins, nýjum mannvirkjalögum, Árósarsáttmálanum, friðlýsingu á Langasjó, Dimmuborgum, Hverfelli og Kalmannshelli og minnkað álver á Bakka niður í 50MW kísilver.
Vinstri græn hafa lagt langmesta vinnu af öllum flokkum í umhverfisvernd og staðið þá vakt mjög vel í ráðherratíð Svandísar Svavarsdóttir. Öll barátta sem háð hefur verið á kjörtímabilinu endurspeglast ekki í iðjuverinu á Bakka og þeir áfangasigrar sem náðst hafa í friðun og vandaðri reglum um umhverfismál ónýtast ekki þrátt fyrir það. Látum engan telja okkur trú um það.
Meðan náttúruverndarsinnar eru í miklum minnihluta á þingi þá verður baráttan alltaf upp í móti. Að kenna Vinstri grænum um ástand umhverfisverndar á Íslandi þegar hreyfingin  hefur borið þann málaflokk í þinginu í vel á annan áratug er vægast sagt ömurlegur málflutningur.

No comments:

Post a Comment