17.4.13

Framtíð Reykjanesfólkvangs

Í morgun lagði ég fram bæjarstjórn Sveitarfélagsin Voga lagði ég fram eftirfarandi bóknun vegna hugmynda bæjarstjórnar Grindavíkur að leggja niður Reykjanesfólkvang.
Inga Sigrún Atladóttir bókar v/ 2. máls: Ég leggst eindregið gegn hugmyndum Grindavíkur um að leggja niður Reykjanesfólkvang og gera þannig að engu þá miklu vinnu sem þar hefur verið unnin í þágu náttúru og útivistar innan fólkvangsins.
Í drög að stjórnunaráætlun Reykjanesfólkvangs eru svæði innan fólkvangsins skilgreind á grundvelli náttúru og umhverfis og ákvörðuð mörk ásættanlega breytinga fyrir hvert deilisvæði. Ennfremur er lagt til að eftirliti sé markvisst á svæðinu og gætt að framkvæmdir innan fólkvangsins fari ekki yfir skilgreind þolmörk. Í stjórnaráætluninni er náttúra og öryggi ferðafólks í öndvegi við mótun þolmarka svæðisins.
Í samþykkt fyrir Reykjanes jarðvang kemur ekkert fram um verndun náttúru og umhverfis og engar vísbendingar um að innan jarðvangsins sé ætlunin að skilgreina þolmörk viðkvæmra náttúruverndarsvæða. Samkvæmt samþykkt jarðvangsins er verndun á forsendum byggðar og atvinnulífs
Þetta er mjög mikilvægt mál sem þarf að ræða mjög vel.

No comments:

Post a Comment