Einu sinni lenti ég í bílslysi en slapp með vægan heilahristing og marbletti. Ég kalla það samt bílslys þrátt fyrir að fjölmörg dæmi séu um að fólk hafi slasast mun meira og fjölmargir jafnvel látið lífið.
Ég hef undanfarin ár reynt að taka þátt í umræðu um einelti á Íslandi. Mér finnst það mikilvæg umræða ekki sýst vegna þess að mér finnst menning sem leyfir einelti að þrífast í samfélaginu vera allt of algeng.
Að afgreiða umræðu um einelti (t.d. þingmanna) með því að verið sé að gengisfella eineltishugtakið finnst mér vera fáránleg umræða. Ef einhver telur að hann sé lagður í einelti þá má vel ræða það. Það mega allir taka þátt í þeirri umræðu. Auðvitað með rökum og lýsingum á atburðum sem raunverulega gerðist.
Það er nefnilega þannig að fjöldi barna, unglinga og fullorðins fólks verður fyrir árásum annarra en velur að tala ekki um vanlíðan sína vegna þess að þeim líður ekki nógu illa, geta ekki sýnt fram á líkamlega áverka, sjá að aðrir verða fyrir miklu meiri árásum en þau,
Þau bæla niður vanlíðan sína af hræðslu við að gengisfella eineltishugtakið.
No comments:
Post a Comment