Undanfarin ár hefur umræðan um einelti í íslenskum skólum verið talsverð. Umræðan er mikilvægt en þó er ennþá mikilvægara að kafa djúpt í vandamálið og horfast í augu við hvað raunverulega veldur því að ekki tekst betur að ráða við einelti en raun ber vitni.
Í þeim kenningum sem mest eru notaðar til að vinna gegn einelti á Íslandi er lögð áhersla á að móta menningu í skólum þannig að ekki sé flott að nýðast á öðrum og sá sem það gerir sé litinn hornauga. Þessi félagsmótun þarf að ná um allan skólann, bæði til nemenda og starfsfólks.
Skólastjórar eru í lykilstöðu til að móta skólamenningu þannig að einelti líðst ekki. Í menningunni felst lykillinn í vinnunni. Ef í skólanum ríkir menning þar sem starfsfólki leyfist að mismuna börnum þrífst einelti. Þá er alveg sama hvað gert er, einelti kemur alltaf aftur.
Nú er auðvelt að gera ráð fyrir því að kennarar séu yfir það hafnir að mismuna börnum. En hvers vegna eigum við að gera ráð fyrir að það sé óvenjulegt þegar alls staðar í samfélaginu er til staðar menning þar sem frumskógarlögmálið ríkir.
Það er engum sem náttúrulega líkar vel við alla – það er þjálfun að láta sér líka vel við allt fólk. Það þarf sjálfsaga og innrætingu til að bera virðingu fyrir skoðunum sem er ólík okkar eigin. Stundum þarf kennari virkilega að beita sig hörðu til að láta sér þykja vænt um börn sem alla daga gera starfið mun erfiðara en það þyrfti að vera. Undir miklu álagi getur verið auðvelt að kenna barninu um og láta ógætileg orð falla.
Kennarar eru upp til hópa gott fólk, eins og fólk almennt. En það þarf sterkan ramma í skóla til að sterkir einstaklingar sem ekki er starfi sínu vaxnir eyðileggi ekki andrúmsloftið í skólanum.
Starfsfólk skóla þarf að vera skjöldur og hlíf fyrir alla nemendur, líka grenjuskjóðurnar, klöguskjóðurnar, athyglissjúka einstaklinginn, þann ofvirka, þann ofurviðkvæma, töffarann, eineltarann og fórnarlambið. Það er ekki auðvelt og sumum finnst það alls ekki sjálfsagt viðhorf.
Í öllum starfsstéttum er fólk sem hefur þörf fyrir að sýna vald sitt með því að nýðast á öðrum. Það hættir ekki fyrr en kerfið er nógu sterkt til að stoppa þá hegðun, endanlega.
No comments:
Post a Comment