Fyrir nokkrum árum var ákveðið að fara að fullu í að innleiða Skóla án aðgreiningar í íslenska skóla. Vegna stefnuleysis, peningaleysis, forystuleysis og stöðugra átaka hefur stefnan ekki verið að fullu innleidd. Nú þarf að taka ákvörðun um hvort klárað verði að innleiða stefuna eða hvort horfið verður til baka til skólastarfs með aðgreiningu. ´
Minn óskalisti fyrir kjarasamninga kennara.
1. Kjarasamningar þurfa að skilgreina vel hlutverk umsjónarkennara sem ábyrgðarmann og tengilið í góðum og uppbyggilegum samskiptum við foreldra barna í umsjónarbekk.
2. Umsjónarkennarar fá eina milljón á mánuði í laun og fyrir það fylgir hann umsjónabekk sínum allan skóladaginn og ber ábyrgð á námi og líðan allra barna allan skóladaginn.
3. Kjarasamningar kennarar þurfa að innihalda
ákvæði um að kennarar fái þjálfun og stuðning til að innleiða hugmyndafræði
skóla án aðgreiningar og tileinka sé fjölbreyttar kennsluaðferðir sem taka mið
af mismunandi bakgrunni, hæfileikum og áhugamálum nemenda.
4. Kjarasamningur kennara þarf að kveða á um að farsældarfulltrúar í sveitarfélögum taki við af kennaranum sem tengiliður við sálfræðinga, félagsfræðinga og barnavernd í málefnum einstakra barna. Foreldrar þurfa að hafa grundvallar stöðu gagnvart sérfræðingum og greiningum barna sinna þar sem umsjónarkennari er aðeins einn aðili sem kemur að málum en ekki grundvallarhlekkur í málefnum barnsins.
5. Auka þarf ábyrgð umsjónarkennara á umsjónarbekk. Auka þarf kennsluskyldu kennara þannig að umsjónarkennari hafi betri tök á að halda utan um bekkinn sinn og fylgjast betur með þörfum og framförum nemenda sinna.
6. Breyta þarf matskerfum þannig að þau taki
mið af fjölbreyttum hæfileikum og styrkleikum nemenda, frekar en að einblína
eingöngu á hefðbundin próf og einkunnir.
7. Setja í kjarasamning að hámarks fjöldi í
umsjónarbekk fari aldrei yfir 20 nemendur.
8. Taka fagleg störf út fyrir skólaárið og vinna aðeins að kennslu og undirbúningi kennslu á skólaárinu. Starfsdagar fara í nauðsynlegt samráð s.s. kennara- og starfsmannafundi.
Með þessum breytingum gætu kjarasamningar
stuðlað að skólastarfi sem er meira í takt við fjölbreytileika og röddum barna,
sem getur leitt til betri námsárangurs og vellíðan nemenda.
No comments:
Post a Comment