Á þriðjudaginn er búið að boða okkur á fund með forsvarsmönnum Norðuráls og reikna ég með að það eigi að ræða línumálin við okkur. Líklega verður okkur sagt að ef við stöndum ekki með meirihlutanum í að setja upp loftlínur um land sveitarfélagsins þá munum við bera ábyrgð á að Reykjanesskaginn verði rafmagnslaus meira og minna næstu áratugi. Einnig er ég búin undir að þurfa að axla ábyrgð á framtíðar atvinnustarfssemi á Reykjanesi og ýmsum fleiri plágum sem loftlínusinnar telja óhjáhvæmilegt að verði fylgifiskur krafna okkar um jarðstreng.
En línumálin eru skýr hjá okkur, engar loftlínur um land sveitarfélagsins þrátt fyrir að við styðjum atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum.
No comments:
Post a Comment