7.11.07

Um ávöxtun Framfarasjóðs

Sem betur fer eru hitaveitupeningarnir okkar nú öruggir inn á bankabók í sparisjóðnum. E listinn var þó búinn að samþykkja að kaupa í einhverjum verðbréfasjóðum fyrir peningana, en vegna einhverra undarlegra aðstæðna fóru þeir eftir fjárfestingastefnu H listans og því eru peningarnir ennþá öruggir inn á verðtryggðri bankabók. Gaman að sjá að þeir hafa trú á okkar stefnu í fjármálum bæjarins.
Í fundargerð 7. nóvember 2007 má lesa um áherslumun listanna.

7. Fjárfestingarstefna eigin fjár Sveitarfélagsins Voga.

Formaður bæjarráðs leggur fram tillögu um að sjóðurinn verði settur í eignastýringu hjá fjármálafyrirtæki sem fær heimild til að ráðstafa allt að 20% fjársins til fjárfestinga í hlutabréfasjóðum innanlands og utan. Að lágmarki 80% fjársins verði fjárfest í áhættulitlum sjóðum.

Fulltrúar H- lista telja að ekki ætti að taka neina áhættu með sjóðinn heldur stefna að hæstu mögulegu ávöxtun án áhættu, sem sé að leggja féð inn á verðtryggðan reikning.

Fulltrúar H- lista leggja því fram breytingatillögu um að tekið verði tilboði Sparisjóðsins í Keflavík um ávöxtun á verðtryggðum reikning.

Forseti ber breytingatillöguna upp til atkvæða.
Tillagan er felld með fjórum atkvæðum (meirihlutans) gegn þremur.

Forseti ber tillögu formanns bæjarráðs upp til atkvæða.
Tillagan er samþykkt með fjórum atkvæðum gegn þremur.

Formaður bæjarráðs leggur fram tillögu um að bæjarstjóra verði falið að ganga til samninga við Sparisjóðinn í Keflavík um samstarf á grundvelli þeirra fjárfestingastefnu sem samþykkt hefur verið. Bæjarstjórn felur bæjarstjóra jafnframt að vinna samþykkt um stjórn sjóðsins.

Inga Sigrún tekur undir tillögu meirihlutans um að leita til Sparisjóðsins í Keflavík um að ávaxta þá peninga sem bæjarfélagið fékk við sölu á hlutabréfum í Hitveitu Suðurnesja síðastliðið sumar. Við erum þó ósammála meirihlutanum um fjárfestingarstefnu og viljum leggja til að farin verði áhættulaus, verðtryggð leið, án fjármagnsgjalda sem þó mun tryggja afar góða ávöxtun. Það er okkar skoðun að sú leið sem við leggjum til hjá Sparisjóði Keflavíkur sé betri en sú sem meirihlutinn leggur til þegar tekið er tillit til heildarávöxtunar, áhættu og þeirra umsýslugjalda sem fylgja fjárfestingum í hlutabréfasjóðum.

Forseti ber tillögu formanns bæjarráðs upp til atkvæða.
Tillagan er samþykkt með fjórum atkvæðum, þrír sátu hjá.

No comments:

Post a Comment