23.8.08

Skýring á fullyrðingu E-lista um að bæjarfulltrúi H-listans segi ósatt í fjölmiðlum

Fyrir nokkru sendu kvenfélagið Fjóla og smábátafélagið erindi til bæjarstjórnar til að reyna að fá lóð niðri við höfn undir hús sem þau vilja setja niður þar.
Skipulags og byggingarnefnd samþykkti að setja lóðina á skipulag en meirihlutinn dróg ákvörðuna til baka þar sem formaður skipulags og byggingarnefndar stóð einn gegn hugmyndinni því henni þótti "húsið ljótt og taldi einsýnt að félögin hefðu ekki efni á þessu"

Við í H listanum fórum fram á að félögunum yrði svarað heiðarlega og þeim sagt hvort mögulegt væri að fá lóðina á skipulag eða ekki svo þau gætu þá gert aðrar ráðstafanir með húsið. Mikið var gert úr því þegar ég túlkaði frestun bæjarstjórnar á málinu sem höfnun. E listinn var meira segja svo hneikslaður að hann skrifaði margar greinar um málið sem þó voru einn á þennan veg.

Nú þremur mánuðum seinna er ekki ennþá búið að taka málið fyrir og taka afstöðu til tillögunar í skipulaginu og lítu allt út fyrir að skipulagið verði afgreitt án þess að lóðin sé sett inn á skipulag eins og félögin óskuðu.

Svona spurning um að geta tekið ákvarðanir og verið heiðarlegur gagnvart þeim erindum sem berast án þess að reyna að svæfa þau í "frestun í óákveðinn tíma".

No comments:

Post a Comment