Raforkumálin voru í brennidepli á aðalfundi SSS. Fyrir fundinum lá ályktun þar sem sveitarfélögin leggja þunga áherslu á að öryggi orkuflutnings til sveitarfélaganna á Suðurnesjum verði tryggt og að næg flutningsgeta verði til staðar fyrir ný atvinnutækifæri á svæðinu. Í máli Guðmundar I. Ásmundssonar, aðstoðarforstjóra Landsnets, kom fram að áríðandi væri orðið að fá niðurstöðu í viðræður við Hafnarfjarðarbæ um lagningu nýrra raflína til Suðurnesja. Ekki væri óhugsandi að þeirri deilu yrði vísað til ríkisvaldsins til úrlausnar. Búið væri að ná samkomulagi við önnur sveitarfélög sem að málinu koma.
Er E-listinn meirihluti í Vogum búinn að lofa Landsneti því að það verði veitt leyfi fyrir loftlínur á landi sveitarfélagsins?
Á bæjarráðsfundi þann 11 september s.l. var lagt fram til kynningar drög að samkomulagi við Landsnet merkt trúnaðarmál og þau (drögin) hafa ekki verið síðan á dagskrá með öðrum orðum óafgreidd.
Margoft höfum við í H-listanum spurt meirihluta E-listans hvort þeir séu ekki búnir að gera upp hug sinn en alltaf fengið sama svarið nei. Eftir að hafa hlustað á Guðmund I Ásmundsson í gær spurðum við meirihlutann hvort þetta væri rétt sem kæmi fram í máli Guðmundar og enn kom sama svarið NEI
Við spurðum Guðmund hvaða upplýsingar hann hefði til að halda þessu fram þar sem ekki væri enn búið að fjalla um drögin í sveitafélaginu og Guðmundur sagði að Landsnet hefði loforð frá meirihluta e-listans að þetta yrði samþykkt.
Spurning!! Hvorum á að trúa meirihlutanum e-listans eða Guðmundi.
Svar !! Það kemur í ljós, en við trúum Guðmundi.
No comments:
Post a Comment