27.4.10

Um rangfærslur og staðreyndir í landakaupamáli E-listans

Í grein E-listamanna sem birt var á vef VF í dag koma fram ýmsar „leiðréttingar“ á málflutningi H-listans. Þar sem þeim er umhugað um að fara með rétt mál vil ég leiðrétta nokkrar rangfærslur sem m.a. beinast að mér persónulega.

Um fund bæjarráðs 8. apríl þar sem bæjarstjóra var veitt umboð til að gera landeiganda tilboð vil ég segja:

· Á fundinum var umræða um landakaupin á dagskrá. Þegar ég mætti til fundar var fundarboði breytt þannig að tilboð í landið átti ekki að vera til umræðu heldur afgreiðslu. Gögn með málinu höfðu ekki fylgt fundarboði og því kröfðust E-listamenn að ég samþykkti eða synjaði að ganga til samninga um landakaup sem ég hafði aldrei heyrt af eða séð neitt um og hafði því ekki haft neina möguleika til að kynna mér. Ég bókaði athugasemd um breytingu á auglýstri dagskrá og óskaði eftir að málinu yrði frestað vegna þess að gögn vantaði. Því var hafnað.

Um fund bæjarráðs 26. apríl þar sem samþykkja átti undirskrifað tilboð bæjarstjóra vil ég segja:

· Fundarboð og fundargögn bárust undirritaðri klukkan 16:00 degi fyrir fundinn. Þá vor fjórtán og hálf klst. þar til fundur átti að hefjast. Bæjarráðsfundi á að boða með 48 klst. fyrirvara. Ég sendi bæjarstjóranum athugasemdir við fundarboðun. Nokkrum klukkustundum síðar var fundinum frestað til 26. apríl.

· Í bréfi E-lista kemur fram að tilboð landeigenda um 175 milljónir hafi verið til umræðu. Rétt er að undirskrifaður kaupsamningur var til afgreiðslu. Þetta mál fékk aldrei neina umræðu í bæjarráði heldur alltaf lagt upp með málið til afgreiðslu, þrátt fyrir mótmæli mín.

· Í bréfi E-listamanna kemur fram að tilboð jarðeigenda upp á 175 milljónir verði til umræðu á næsta bæjarstjórnarfundi. Í bókun á bæjarráðsfundinum kemur fram að bæjarráð leggi til að tilboðið verði ekki samþykkt. Bæjarráð var einróma í afstöðu sinni. Hingað til hefur samstaða í bæjarráði jafngilt fullnaðarafgreiðslu.

· Í bréfinu taka E-listamenn upp rangfærslu í bókun formanns bæjarráðs á fundinum um að ég hafi farið með gögnin í fjölmiðla. Hið rétta og sanna er að ég fór aldrei með nein gögn í fjölmiðla, ég hafði ekki samband við neinn fjölmiðil og enginn fjölmiðill hafði heldur samband við mig. Þetta ætti hver sá fjölmiðill sem þeir hafa í huga að geta staðfest.

Um meintan skort á landi undir iðnaðarsvæði vil ég segja.

· E-listinn fullyrðir að án þess að hafa umrætt svæði til afnota hafi sveitarfélagið ekki mikla möguleika á að úthluta lóðum undir atvinnustarfsemi og þar með fjölga atvinnutækifærum. Sveitarfélagið keypti fyrir nokkrum árum 53.761 fm land af sömu eigendum þar sem skipulagt var iðnaðarsvæði. Af þessu landi hafa verið nýttir 20.000 fm og undanfarið kjörtímabil hafa engar nýjar byggingar bæst við. Land undir iðnaðarsvæði ætti því ekki að vera það sem stöðvar E-listann í fjölgun atvinnutækifæra.


Um framfarasjóðinn vil ég segja:

· Þegar framfarasjóðurinn var stofnaður lögðum við til að meirihlutinn hefði ekki einskorðað vald til að taka út úr sjóðnum. Annað hvort þyrfti aukinn meirihluta bæjarstjórnar eða leyfi íbúa. Þrátt fyrir fögur fyrirheit kom E-listinn peningunum þannig fyrir að aðeins þarf að kynna úttektina fyrir bæjarbúum og þó minnihlutinn sé á móti fjárfestingunni hefur það enga þýðingu. Því eru það engin ósannindi að E-listinn hefði veitt sjálfum sér leyfi til að taka út úr Framfarasjóðinum.

Í greininni líta E-listamenn á sig sem siðapostular sannleikans og gefa sitt fyrsta kosningaloforð um að halda fram „því sem sannara reynist - fremur en því sem betur hljómar“. Vonandi munu þeir framvegis íhuga betur þann sannleika sem þeir bera á borð fyrir fólk, ekki síst þegar þeir taka að sér að leiðrétta aðra.

Að mín mati hefur valdníðsla E-listans í þessu máli verið með ólíkindum. Nú geysast þeir fram og tala um málefnalega umræðu – hið sanna er að við fengum aldrei tækifæri til að kynna okkur málið, né ræða það á málefnalegum forsendum.

No comments:

Post a Comment