27.5.09

af bæjarstjórnarfundi 26. mars 2009

Bæjarstjórnarfundur marsmánaðar er afstaðinn, oft hafa nú umræðurnar komið mér á óvart en sjaldan eins og nú.

Bæjarstjórinn og annar varaforseti vildu ræða um þá hræðilegu misgjörð mína að spyrjast fyrir um bréf sem bæjarstjóri sendi starfsmanni heimaþjónustunnar. Bréfið innihélt augljósar rangfærslur. Bæjarstjórinn og annar varaforseti reyndu það sem þeir gátu til að gera málflutning minn tortryggilegan með hinum og þessum smjörklípuaðferðum.

Fullyrðing: Ég var sem bæjarfulltrúi að láta nota mig.
Svar: Ég var ekki að ganga erinda starfsmannsins enda snérist málið ekki um starfskjör hans. Málið snýst um að bæjarstjóri skrifar bréf þar sem hann fullyrðir hluti sem ekki voru réttir.

Fullyrðing: Ég var að láta pólitík hafa áhrif á starf mitt.
Svar: Málið snýst ekki um hvaða pólutíku skoðanir umræddur starfsmaður hefur. Málið snýst um að bæjarstjóri skrifaði bréf þar sem hann fer með rangar fullyrðingar um samþykktir bæjarráðs.

Fullyrðing: Ég tel að bæjarstjóri hafi ekki vald til að lækka laun starfsmanna.
Svar: Málið snýst ekki um hvaða vald bæjarstjóri hefur í starfsmannamálum. Málið snýst um að bæjarstjóri hefur ekki vald til að skrifa bréf með röngum fullyrðingum um bæjarráð.

Bæjarstjóranum finnst rétt að bera upp á mig að fyrirspurn mín sé eins og einhverjum pólutískur þrýstingur sem beitt var fyrir einhverjum kjörtímabilum síðan - sem ég kom að sjálfsögðu hvergi nálægt. Hann er reiður yfir því að ég telji ummælin ekki bæjarstjóra sæmandi.

1. Ég veit ekkert um meintan pólutískar þrýsting.
2. Ég tel að rangar áskanir um tengsl við pólutískan þrýsting sé ekki bæjarstjóra sæmandi.
3. Ég tel að erfitt sé að sitja undir slíkum aðdróttunum bæjarstjóra.
4. Ég tel að ef bæjarstjóri skrifaði aftur bréf með röngum staðhæfingum væri ekki sjálfsagt að bæjarfullrtúar treystu sér til að spyrja út í það - þeir vita núna að þeir eiga á hættu á að vera bendlaðir við pólutískan þrýsting fyrri tíma (sem átti sér stað löngu áður en bæjarstjórinn flutti í bæinn).
5. Ég tel að ótti við viðbrögð bæjarstjóra og þau þau tengsl sem hann sér í eðlilegum og sjálfsögðum fyrirspurnum sé til þess fallið að grafa undan eðlilegri og opinni stjórnsýslu.

Svo má ekki gleyma því að bæjarráð (líka E listinn) var samhljóða í afstöðu sinni um að endurskoða ákvörðun bæjarstjóra.........var allt bæjarráð með pólutískan þrýsting í þessu máli?

Málið snýst um að bæjarstjórinn sendi út bréf þar sem hann fullyrti að bæjarráð hefði samþykkt hluti sem það samþykkti ekki. Við í bæjarráði getum ekki fylgjst með öllum bréfum bæjarstjórans og því er mjög mikilvægt að við getum treyst því að svona hlutir gerist ekki.

Bæjarstjórinn hafði engar skýringar á því hvers vegna hann hafði gert þetta (hann hefði til dæmis getað beðið bæjarráð afsökunar, dregið bréfið til baka og skrifað nýtt). Nei meirihlutinn ákvað að verja bréfaskriftirnar og reyna að gera mig tortryggilega (eins og venjulega).

...og í stað þess að leiðrétta mistök sín og lagfæra þau væla þeir undan því að ég sé ósanngjörn við þá, sé í stöðugum vinsældarkosningum og fari með rangfærslur.

En spurningin er: Eru það eðlileg vinnubrögð að bæjarstjórinn skrifi bréf þar sem hann greinir frá samþykkt bæjarráðs sem ekki hefur átt sér stað?

No comments:

Post a Comment