20.4.12

Ekki láta nauðga þér

(Birtist á Smugunni í apríl 2012)


Annað slagið hef ég fengið fjöldapóst um hvað konur eigi að gera til að koma í veg fyrir að verða nauðgað. Pósturinn er kaldhæðinn og bendir á hvað það er afstætt að konur geti með hegðun sinni komið í veg fyrir nauðgun. En .....samt sem áður leiðir það hugann að því hve miklum tíma konur eyða í að móta hegðun sína þannig að þær verði síður fórnarlömb nauðgara.
Fyrir nokkru rakst ég á grein þar sem  sett eru fram 50 atriði fyrir karla til að koma í veg fyrir að þeir nauðgi. Ég set nokkur dæmi hér fyrir neðan:

  1. Ekki hugsa að um kynlíf sem mannréttindi.
  2. Ekki hugsa um að þú hafir rétt til að nauðga konu.
  3. Þó þú þekkir konuna og hún sé jafnvel konan þín, það gefur þér ekki rétt til að nauðga.
  4. Ef kona gengur nakin um á almannafæri, ekki nauðga henni.
  5. Ef kona er með skilti sem stendur á „ég vil kynlíf“ ekki nauðga henni.
  6. Ef þú sérð konu labba eina úti um nótt, ekki nauðga henni.
  7. Ef þú séð konu í stuttu pilsi, ekki nauðga henni.
  8. Ef þú ert í partý og kona vill kyssa þig og snerta og vill síðan hætta. HÆTTU. 
  9. Ef þú bíður konu út, hún vill stunda kynlíf með þér, en vill svo hætta. HÆTTU.
  10. Nauðgun er glæpur, hvort sem þú ert kærður eða ekki.
  11. Ef þú hugsar um að nauðga konu, farðu þá að hugsa um eitthvað annað. 
  12. Taktu eftir að þú lifir í hugmyndum feðrasamfélagsins, það er eina ástæðan fyrir því að þér dettur í hug að þú hafir rétt til að nauðga. Þrátt fyrir það – hefur þú engan rétt til að nauðga.
  13. Stundum líkar konum ekki við þig – það er eðlilegt.
  14. Þú ert ekki sterkara kynið, verður aldrei og hefur aldrei verið. Konur eru jafnar þér og þú hittir oft konur sem eru klárari en þú. Þannig er það bara.
  15. Stundum halda konur að þú sért heimskur, þær gera grín af þér, koma ekki vel fram við þig, reka þig úr vinnunni, neita að fara út með þér. Þær geta gert allt þetta, alveg eins og karlmenn. Það þýðir ekki að þú hafir rétt til að nauðga.
  16. Ef kona stundar mikið kynlíf, með mörgum mönnum og þér finnst hún vera drusla. Þú hefur samt ekki rétt til að nauðga henni. 
  17. Nauðgun snýst um vald en ekki kynlíf. Gerðu eitthvað annað við fyrirlitningu þína á konum, lestu bók, farðu á námskeið. Ekki nauðga.
  18. Ef þú ert nauðgari, farðu þá í meðferð, eyddu allri ævinni í endurhæfingu – það þurfa sumar konur að gera eftir að hafa verið nauðgað af mönnum eins og þér.  
  19. Engin kona hefur nokkurn tíman og mun aldrei biðja um nauðgun. Engri konu finnst gott að láta nauðga sér. Engin kona býður upp á að láta nauðga sér. Engin kona óskar eftir að láta nauðga sér. Reyndu að muna það.
  20. Ef þú veist að einhver er nauðgari, gerðu eitthvað í því. Ekki horfa fram hjá því, umbera það eða láta eins og þú vitir það ekki. Ekki láta eins og þér sé sama – ekki láta eins og það sé karlmannlegt.  

Í greininni er líka sagt frá rannsókn á dæmdum nauðgurum. Í rannsókninni koma fram að nauðganir eru oftar en ekki skipulagðar. Nauðgarar skipuleggja nauðgun eftir því hve miklar líkur eru á að þeim heppnist verknaðurinn. Þeir velja sér fórnarlamb sem auðvelt er að grípa og klæðist fötum sem auðvelt er að ná af. Hvort klæðnaðurinn er kynörvandi skiptir minni máli.

Nauðgarar eru hluti af menningu sem leyfir ofbeldi gegn konum. Karlmenn sem líta þá menningu jákvæðum augum eru líklegri til að samþykkja nauðgun. Ef þér finnst konur heimskar, ofbeldi skemmtilegt og kýst að tjá þig með ofbeldisfullri hegðun – þá ertu í áhættuhópi.

Byggt á grein á  http://womensstudies.homestead.com/

No comments:

Post a Comment