Um helgina sendi þingmaður frá sér grein þar sem ástandi á þinginu var líkt við samfélag Bavíana. Það rifjaði upp fyrir mér bók sem ég las í námskeiði í stjórnmálafræðideild þar sem fjallað var um forystuhlutverk stjórnenda í opinberum rekstri. Í námskeiðinu var fjallað um forystu sem næði árangri (Real Leadership) og forysta sem ekki skilar árangri, en snýst einungis um sjálfa sig (Counterfeit Leadership).
Til að skýra forystu sem ekki er líkleg til árangurs var tekið dæmi af hópi simpansa (en genamengi þeirra er 98% það sama og manna). Þeir lifa í hópi þar sem forystan er skýr, einn simpansi leiðir hópinn, verndar hann og heldur á honum ákveðinni reglu. Forystuaparnir velja sér fyrstir mat, bæli og maka. Hinir aparnir sætta sig við fyrirkomulagið en leita stöðugt leiða til að finna veikleika hjá forystuapanum og koma honum frá völdum. Ef það tekst þarf nýr forystuapi að öðlast viðurkenningu hópsins með brögðum, greiðum eða ógnvekjandi framkomu.
Þessi lýsing á forystu er að mati höfundar (Dean Williams sem er kennari við Harvard í Boston) aðeins til að völdum og koma eigin hagsmunum á framfæri. Forysta apanna hafði ekki framþróun apasamfélagsins, hag heildarinnar eða bætt siðferði að markmiði. Höfundurinn telur að hegðun apanna megi oft finna hjá fólki í stjórnmálaum og alþjóðlegum samskiptum. Sá sem skilur forystuhlutverk sitt eins og simpansi reynir að tala sem mest á fundum, hann gerir lítið úr þeim sem eru ekki sammála honum og reynir að koma sér í mjúkinn hjá þeim sem hafa meiri völd en hann. Apastjórnendurnir mynda með sér bandalög um sérhagsmuni og skilgreina óvini gagnvart bandalaginu. Þeir reyna að egna fólk hvert gegn öðru til að stjórna mikilvægum auðlindum og öðlast viðurkenningu. Slík vinna hefur ekkert að gera með framþróun heldur þjónar aðeins þeim tilgangi að villa um fyrir fólki, skapa óeiningu og skemmta sér á kostnað annarra.
Nú veit ég ekki hvort eitthvað að þessu á við í leiknum „Hver ræður í þinginu“ sem að sögn þingmannsins er leikinn langt fram á nætur um þessar mundir. En þetta er allavega innlegg í umræðuna.
No comments:
Post a Comment