Í grein í VF 14. júní sl. svarar Baldur Þ. Guðmundsson formaður stjórnar DS grein minni um fjármál Dvalarheimilanna á Suðurnesjum sem birtist í sama blaði viku fyrr. Umræða okkar Baldurs hefur snúist um rekstrarvanda DS og 17 milljóna króna lífeyrissjóðsgreiðslu vegna lífeyrissparnaðar framkvæmdarstjóra DS.
Að mínu mati gætir
nokkurs misskilnings í máli stjórnarformannsins. Í gagnrýni sinni á málflutning
minn blandar hann saman tveimur hliðum á málum. Annars vegar hvort krafa um 17
milljónir í lífeyrissjóð framkvæmdarstjóra DS sé lögmæt og hins vegar hvernig fjármagna
eigi kröfuna. Í greininni minni var ég fyrst og fremst að fjalla um fjármögnun kröfunnar
en ég hef hvergi tekið afstöðu til lögmæti hennar.
Baldur fullyrðir að það
sé rangt hjá mér að stjórn DS hafi hafnað kröfunni, einnig telur hann rangt að
fjárhagsnefnd Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum hafi aukaframlagi vegna
hennar. Baldur telur einnig rangt hjá mér að ríkið hafi hafnað kröfunni auk
þess sem hann telur rangt stjórn SSS staðfest höfnun fjárhagsnefndarinnar. Í
grein Baldurs segir orðrétt "Málið
var kynnt í stjórn DS sl. haust og var afgreitt á fundi 15. sept. 2011. Hvorki
ríkið, fjárhagsnefndin eða stjórn SSS hafa fengið málið sérstaklega til umfjöllunar
þannig að ég fæ ekki séð hvernig tilgreindir aðilar gátu hafnað því."
Um þetta vil ég segja
eftirfarandi:
Á fundi DS 15. september 2011 er málið afgreitt eins og Baldur
bendir á. Það segir hins vegar ekki alla söguna því jafnframt er samþykkt að vísa
afgreiðslu málsins til úrvinnslu fjárhagsnefndar
SSS hvað varðar fjármögnun eftirstöðva. Þannig samþykkti stjórnin ekki að taka
fé af daggjöldum hjúkrunarheimilanna til að greiða lífeyriskröfuna heldur
samþykkti að greiða hana með aukaframlagi frá Sambandi Sveitarfélaga á
Suðurnesjum (SSS).
Á fundi Fjárhagsnefndar
SSS 22. nóvember 2011 var Finnbogi Björnsson framkvæmdarstjóri DS gestur
fundarins. Finnbogi kynnti fundarmönnum fjárhagsáætlun D.S. vegna ársins 2012
og óskaði eftir að sveitarfélögin leggi
til kr. 74.700.000,- auk greiðslu vegna uppsafnaðra lífeyrisréttinda
framkvæmdastjóra.
Í afgreiðslu erindisins
lagði Fjárhagsnefndin til að sökum árferðis hjá sveitarfélögunum á Suðurnesjum verði
framlög til D.S. 2012 þau sömu og 2011.
Á sama fundi
fjárhagsnefndar kynnti Finnbogi að ríkið hefði fyrir sitt leyti hafnað því að
veita DS aukaframlag vegna lífeyrisskuldarinnar. Höfnunin var byggð á því að
laun Finnboga voru hærri en annarra í sambærilegri stöðu hjá ríkinu og því ætti
sveitarfélögin sem sömdu við framkvæmdarstjórann um laun að greiða skuldina. Ég
hef þær upplýsingar frá aðalmanni Sveitarfélagsins Voga í stjórn DS að
framkvæmdarstjórinn hefði gert grein fyrir málinu á sama hátt í stjórn DS.
Á fundi stjórnar SSS þann 5.desember 2011 var fjárhagsáætlun S.S.S. og
samanrekinna stofnanna og fyrirtækja sveitarfélaga á Suðurnesjum 2012 samþykkt.
Einnig voru samþykktar tillögur fjárhagsnefndar SSS eins og þær birtast í
fundargerðum nefndarinnar. Þar með tók stjórn SSS undir höfnun fjárhagsnefndar
á aukaframlagi til DS vegna þeirra liða sem framkvæmdarstjórinn hafði kynnt
fyrir fjárhagsnefnd.
Um meint þekkingarleysi
mitt, dómhörku og tortryggni sem Baldur greinir í fyrirspurnum mínum vil ég
segja eftirfarandi: Ég sat alla fundi fjárhagsstjórnar SSS árið 2011 fyrir hönd
Voga ásamt bæjarstjórum annarra sveitarfélaga á Suðurnesjum. Ég sat fundinn 22.
nóvember þar sem framkvæmdarstjóri DS kynnti kröfuna um uppsöfnuð
lífeyrisréttindi sín og bar fram ósk um að SSS fjármagnaði umræddar
lífeyrisgreiðslur. Ég tók þátt í umræðu um málið og studdi höfnunina. Ég sit
einnig í stjórn SSS með öðrum forsetum bæjarstjórna á Suðurnesjum þar sem
afgreiðsla fjárhagsnefndarinnar var staðfest. Ég er einnig varamaður í stjórn
DS og hef lagt áherslu á að setja mig vel inn í þau mál sem þar eru á dagskrá.
Ég efast því um að nokkur sveitarstjórnarmaður á Suðurnesjum þekki eins vel til
þessa máls og ég.
Ég vil að lokum taka
heilshugar undir með Baldri þegar hann segir að spennandi tímar séu framundan í
öldrunaþjónustunni og við ættum öll að einbeita okkur að því að koma
hjúkrunarheimilum á svæðinu í gott horf. Gagnrýnar spurningar, aðhald og opin
umræða er að mínu mati skref að því markmiði og vona ég að formaður stjórnar DS
deili með mér því sjónarmiði.
Síðari viðbót.
Í umræðunni hefur komið fram að með þessari grein hafi ég fallist á lögmæti kröfunnar. Rétt er að ég hef ekki haft næg gögn til að kynna mér það en hef ákveðnar efasemdir um það. Það er því fjarri lagi að ég sé sannfærð um lögmætið.
Síðari viðbót.
Í umræðunni hefur komið fram að með þessari grein hafi ég fallist á lögmæti kröfunnar. Rétt er að ég hef ekki haft næg gögn til að kynna mér það en hef ákveðnar efasemdir um það. Það er því fjarri lagi að ég sé sannfærð um lögmætið.
No comments:
Post a Comment