6.9.12

Málamiðlanir í stjórnmálum.


Á vinstri vaktinni gegn ESB skrifar RA einbeitta greiningu á stefnu Vinstri grænna í ESB málum. Þar kemur fram að Vg "hafa komið sér í einhverja verstu klípu sem stjórnmálaflokkur getur ratað í". Í stjórnarsambandinu hefur að mati greinarhöfundar farið "allt á versta veg...eins og vænta mátti". Greinarhöfundur telur sig hafa góða tilfinningu fyrir kjósendum Vg og metur stöðuna sem svo að  "enginn skilji lengur" stefnu flokksins og frambjóðendur flokksins "slá úr og í" og "segjast hvorki vera fylgjandi aðild né andvígir".

Nú er alveg ljóst og hefur margsinnis komið fram að Vg telur að hagsmunum Íslendingar sé best borgið utan ESB. Það er fyrst og fremst byggt á stefnu flokksins um sjálfstæði landsins. Sú stefna hefur ekki breyst þrátt fyrir að gerðar hafi verið málamiðlanir við samstarfsflokkinn.

Slík málamiðlun má sjá sem hliðstæðu samnings sem Sjálfstæðisflokkurinn gerði 2007 en þar var kveðið á um að "Ísland verði í fararbroddi þjóða heims í umhverfismálum" og gerð verði "skýr áætlun um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda" og "áhersla verði lögð á að leiða til lykta ágreining um þjóðareign á náttúruauðlindum" þessi atriði verða seint talin áhersluatriði hins virkjanaglaða sjálfstæðisflokks.

 Í stjórnarsamstarfi Framsóknar og Sjálfstæðisflokks 1995-2007 var einnig gerð málamiðlun þar sem samþykkt var að móta fjármálakerfið eftir frjálshyggjustefnu sjálfsæðisflokksins þrátt fyrir að framsóknarflokkurinn hafi ályktað á flokksþingi 1994 að "eftir dýrkeypt ár frjálshyggjunnar verður félagshyggjan að ná yfirhöndinni á ný". Það er því vandséð hvernig hægt sé að segja að Vg hafi komið sér "í vestur klípu sem stjórnmálaflokkur hefur ratað í". Í stjórnarsáttmálanum kemur skýrt fram að Vg sé ekki að breyta afstöðu sinni heldur sé um málamiðlun að ræða þar sem eitt stefnumál er gefið eftir. 

Stefna Vg í ESB málum er samt sem áður skýr. Vg telur það ekki þjóna hagsmunum Íslands að ganga í Evrópusambandið - í samningum um ríkistjórnarsamstarf var samþykkt að styðja aðildarviðræður sem enda í því að þjóðin fær að meta samninginn. Það var samþykkt í flokksráði á sínum tíma. Nú er staðan sú að málið hefur dregist og ljóst er að efnisleg niðurstaða næst ekki á kjörtímabilinu þá stöðu er mikilvægt og eðlilegt að ræða. Einnig er mikilvægt að kveða skýrt á um hverjar kröfum Vg verða í Evrópumálum í því samstarfi sem báðir flokkar stefna á eftir næstu kosningar.


No comments:

Post a Comment