Ég heiti Inga Sigrún Atladóttir 41 árs og starfa sem forseti bæjarstjórnar í Sveitarfélaginu Vogum. Ég gef kost á mér í 1.sæti á framboðslista Vinstri Hreyfingarinnar Græns framboðs í komandi alþingiskosningum. Ég er nýlega gengin til liðs við flokkinn en lengi hef ég starfað innan Samfylkingar. Ég yfirgaf Samfylkinguna vegna þess að framkvæmd stefnu flokksins tekur að mínu mati ekki mið af umhverfissjónarmiðum og berst ekki gegn yfirburðastöðu einokunar- og stórfyrirtækja á kostnað almannahagsmuna. Þessi tvö sjónarmið tel ég vinna gegn þeim jöfnuði sem ég vil berjast fyrir í samfélaginu og er það mitt mat að hugmyndafræðilega eigi ég frekar samleið með Vinstri Hreyfingunni Grænu framboði.
Ég hef beitt mér í opinberri umræðu um umhverfismál síðan 2006 auk þess sem ég hef lengi barist fyrir gagnsæi og heiðarlegri leikreglum í samfélaginu. Ég hef starfað sem kennari og deildarstjóri og hef leitt fjölmörg þróunarverkefni sem snúa að aukinni víðsýni, umhverfismálum og baráttu gegn einelti í skólakerfinu. Baráttan gegn leyndarhyggju og andfélagslegri hegðun hefur mótað minn starfsferil og skrifaði ég m.a. meistararitgerð um stjórnunarhætti sem stuðla að víðsýni og vinna gegn einelti. Ég hef verið oddviti H-lista, óháðra borgara í sveitarstjórn síðan 2006 og forseti bæjarstjórnar síðan 2010. Ég sit í stjórn sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Vinnumarkaðsráði Suðurnesja og stjórn Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum.
Hvers virði er að eiga fallegt hús ef við höfum ekki fallegan heim til að setja það í?
No comments:
Post a Comment