(Birtist í Hafnafjörður, Álftanes, Vogar 16. des 2011)
Fullt nafn: Inga Sigrún Atladóttir
Fæðingardagur og ár: 8. apríl 1971
Fæðingarstaður: Akureyri
Hvar ólstu upp? Fyrstu árin á Akureyri en flutti svo á Eskifjörð.
Starf og menntun: Ég er guðfræðingur og kennari, með meistarapróf í stjórnun og diplómu í opinberri stjórnsýslu. Eftir nám kenndi ég í grunnskóla og var deildarstjóri í Stóru-Vogaskóla 2003-2009. Ég var framkvæmdastjóri Ungmennafélagsins Þróttar til 2011. Ég hef verið í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga síðan 2006, fyrsta kjörtímabilið oddviti minnihlutans og eftir kosningar 2010 forseti bæjarstjórnar.
Maki og fjölskylda: Gift Eric dos Santos sjávarlíffræðingi hjá Hafrannsóknarstofnun.Við eigum þrjú börn: Guðjón Armand 11 ára, Markús Inga 4 ára og Dagbjörtu Katrínu 18 ára sem ég átti í fyrra sambandi.
Gæludýr? Á heimilinu eru tveir naggrísir.
Foreldrar þínir og uppruni: Foreldrar mínir eru Atli Viðar Jóhannesson sjómaður og Benna Stefanía Rósantsdóttir fiskverkakona. Þau eru bæði ættuð frá Akureyri en búa á Eskifirði.
Uppáhaldsmatur: Það er jólakalkúnn bóndans eldaður eftir ströngustu bandarísku stöðlum.
Uppáhaldsdrykkur: Vatn
Hver er þinn helsti kostur? Ég ber mikla umhyggju fyrir fólki og langar að gera heiminn aðeins betri.
En galli? Ég er mjög heimakær og finnst ég hafa endalaus verkefni sem ég get sinnt þar. Það er galli í pólitík. Ég vil láta verkin tala og á það til að fara fram úr mér, þá er gott að hafa athugult samstarfsfólk.
Hvað gerir þú þegar þú vilt vera rómantísk við manninn þinn? Þá elda ég fyrir hann íslenskt lambakjöt og fer ekki snemma að sofa.
Helstu áhugamál: Pólitík er mikið áhugamál hjá mér og hvernig er hægt að gera hana jákvæðari og betri. Ég hef eiginlega áhuga á öllu, það er bæði kostur og galli. Ég les mjög mikið og svo finnst mér gaman að ferðast og sjá eitthvað nýtt.
Með hvaða liði heldur þú í íþróttum (innanlands jafnt sem utan)? Hér verð ég að segja Þróttur Vogum.
Tónlistarsmekkur og/eða uppáhalds tónlistarmaður/tónlistarmenn? Ég hlusta aðallega á fjöruga tónlist sem kemur mér í gott skap eða lög með fallegum textum sem snerta við mér. Maðurinn minn er duglegur að senda mér lög sem hann veit að ég kann að meta.
Hvaða bók/bækur ertu að lesa þessa dagana? Samhengi hlutanna eftir Sigrúnu Davíðsdóttur og svo er ég allaf að lesa fullt af opinberum skýrslum og fræðibókum.
Geturðu nefnt bestu bók sem þú hefur lesið? Biblían.
Hefurðu farið í leikhús eða tónleika á árinu? Fór á jólatónleika KK og Ellenar og sá Hreinsun í þjóðleikhúsinu og nokkur önnur leikrit. Stóra stelpan mín er alger leikhúsfíkill svo við reynum að sjá sem flestar sýningar saman.
Hefurðu farið til útlanda á árinu og þá hvert? Ég fór til Þýskalands og Tékklands.
Uppáhaldsstaður á Íslandi: Reykjanesið og öll þau jarðfræðiundur sem þar finnast, fjöllin á Austurlandi eru líka einstök upplifun.
Hvers vegna valdir þú að búa í Vogunum? Mér finnst gott að búa í litlu samfélagi þar sem nálægðin er mikil, mér finnst gott að fara út og þekkja alla sem ég hitti. Vogarnir eru mátulega langt frá höfuðborgarsvæðinu þannig að það er hægt að njóta þess að vera í sveitinni en hafa samt alla kosti borgarinnar.
Helstu kostir þess að búa í Vogunum? Fallegt umhverfi, mikil saga og gott fólk.
Ertu búin að kaupa allar jólagjafirnir? Nei ekki byrjuð
Hvað vilt þú fá í jólagjöf? Leikhúsmiða, skó og bækur.
Ferðu í kirkju um jólin? Já.
Hvað kemur þér í jólaskap? Jólaskreytingar, jólaljós, jólasnjór, ánægð börn og brosandifólk.
Hvað ertu með í matinn á aðfangadag og jóladag? Kalkúnn á aðfangadag og hangikjöt á jóladag.
Hver eldar jólamatinn? Maðurinn minn eldar kalkúninn og ég hangikjötið.
Hvað leiddi þig út í pólitík? Ég var aðeins farin að vinna á þessum vettvangi í Reykjavík. Mér fannst ég hafa eitthvað fram að færa í pólitík, hafði sterkar hugsjónir og áhuga á fólki og samfélaginu almennt. Þegar ég var flutt í Vogana og var búin að búa þar í nokkur ár fór ég að skoða þá möguleika sem voru í boði og ræddi m.a. við forsvarsmenn H-listans sem þá var með meirihluta í bæjarstjórn. Ég hafði staðið fyrir mikilli uppbyggingu og endurskoðun á skólastarfinu í Vogum bæði sem deildarstjóri og kennari. Þeir sem höfðu kynnst mér í því starfi studdu mig og ég fékk tækifæri til að leiða H-listann í kosningunum 2006. Undir minni forystu missti flokkurinn meirihlutann eftir 16 ára forystu, það var mikilvæg og erfið reynsla bæði fyrir mig og flokkinn.
Hafa Vogar farið „vel“ eða illa út úr kreppunni? Kreppan hjá okkur birtist í háu atvinnuleysi og afleiðingar atvinnuleysis eru alvarlegar, sérstaklega fyrir lítil samfélög. Það er mikið af ungu fólk í Vogum sem nýlega var búið að kaupa sína fyrstu íbúð þegar hrunið varð. Það fólk er að fara mjög illa út úr þessu. Allt hefur hækkað og miklu erfiðara að bæta við sig vinnu til að redda sér. Margir eru orðir geysilega þreyttir á að ná aldrei endum saman og það skapar vonleysi og neikvæðni sem er mjög erfitt að eiga við.
Hver er helsti styrkleiki sveitarfélagsins Voga? Bærinn er snyrtilegur og fallegur, í fallegu umhverfi. Þar er nóg af útivistasvæðum fyrir börn, mjög góður leikskóli og grunnskóli þar sem lögð hefur verið áhersla á heilbrigði og heilbrigða umgengni við umhverfið.
En veikleiki? Nálægðin getur verið ókostur og stundum er mikið talað um náungann, við þurfum líka að sækja þjónustu í talsverðum mæli út fyrir bæinn og það er galli.
Ef þú yrðir kjörinn forsætisráðherra landsins. Hver yrðu þín fyrstu verk? Ég myndi finna leiðir til að efla meðvitund fólks um umhverfi sitt og eigið heilbrigði. Ég myndi byggja öfluga matvælastóriðju þar sem flutt væri út mikið magn á erlenda markaði. Það er mikilvægt að komast út úr neikvæðri umræðu um atvinnumálin og setja allan þunga í að byggja upp á ábyrgan og sjálfbæran hátt.
Ég myndi setja upp velferða og bótakerfi sem gengur út á að allir leggi eitthvað til samfélagsins. Við sem höfum séð afleiðingar mikils atvinnuleysis sjáum hvað það er eyðileggjandi fyrir fólk að sitja heima, fá sendan pening og upplifa að það sé samfélaginu gagnslaust. Það er ekki þannig og það ættu ekki að vera skilaboðin.
Ég myndi beita mér gegn einelti á öllum stigum þjóðfélagsins og umræðu um þá menningu sem leyfir og umber einelti og andlegt ofbeldi.
Ég myndi einfalda stjórnsýsluna (þannig að fólk þyrfti ekki að fara á marga staði með erindi sín), færa fleiri verkefni til sveitarfélaganna, afnema verðtrygginguna og gera sérstakt átak í að vinna gegn spillingu og lobbýisma.
No comments:
Post a Comment