Þann 23. október 2012 er Ungmennafélagið Þróttur í Vogum 80 ára. Ungmennafélagið byggir á langri hefð ungmennafélagsstarfs í Sveitarfélaginu og á sú hefð mun lengri sögu því frá því fyrir aldamótin 1900 hefur verið starfrækt ungmennafélag í Sveitarfélaginu Vogum.
Í litlum bæjarfélögum skiptir félagsauður miklu máli. Félagsauður byggir á hugmyndinni um að í þeim samfélögum þar sem ríkir traust milli manna sé gott að búa. Félagsauður endurspeglar þá hugmynd að í trausti milli manna felist auður sem allir íbúar eiga saman. Til að byggja upp félagsauð þurfum við að hugsa athafnir okkar út frá hvert öðru, hjálpast að og bera virðingu fyrir sérstöðu hvers annars. Félagsauður lýsir samskiptum, samvinnu, samstöðu og gagnkvæmni og vísar til jákvæðra áhrifa sem leiða af þeim gildum. Rannsóknir hafa sýnt fram á að félagsauður veldur því að samfélög verða skilvirkari, öryggi er meira og þar eru einstaklingar tillitssamari og hjálpsamari.
Um þessar rannsóknir og hugmyndina um félagsauð vissu stofnfélagar Ungmennafélagsins Þróttar árið 1932 ekki. Engu að síður byggðu þeir upp öfluga hreyfingu sem hlaut viðtækan stuðning einstaklinga og annarra félagasamtaka í hreppnum. Í bók Guðmundar B. Jónssonar um Mannlíf og Mannvirki í Vatnsleysustrandarhrepp er rakin stofnun Ungmennafélagsins, umfangsmikil starfsemi þess, samstaða íbúa um félagið og samfélagsleg ábyrgð sem frjáls félagasamtök í sveitarfélaginu tóku á sig á tímum þegar opinberar stofnanir í hreppnum voru litlar sem engar.
Frá upphafi hefur Ungmennafélagið Þróttur haldið út blaði sem kallast Vitinn. Blaðið er bók sem gekk á milli manna (ritstjóra) sem skrifuðu í bókina ýmislegt sem þeir vildu miðla til sveitunga sinna bæði til gamans og fróðleiks. Þegar ég starfaði sem framkvæmdarstjóri Ungmennafélagsins Þróttar gerði ég mér ferð upp á Landsbókasafn til að lesa í Vitanum um mannlífið á staðnum fyrr á tímum. Ég varð snortin af þeirri bjargföstu trú sem ritstjórar Vitans höfðu á samfélagi sínu og þeim möguleikum sem þeir trúðu að íbúar þess hefðu til að gera samfélagið betra. Í þeirri trú er þekkingu og hugmyndum miðlað og allir leggja sitt af mörkum. Þeir sem skrifuðu í bókina reyndu að telja kjark í félaga ungmennafélagsins og á síðum bókarinnar er andi ungmennafélagshreyfingarinnar lifandi og í sterkum tengslum við þá uppbyggingu sem átti sér stað í hreppnum á þessum tíma.
Það er mikilvægur hluti af hverju byggðarlagi að huga að sögunni, spegla sig í henni og þroska sig í samtali við hana. Því mun ég leggja til við bæjarstjórn að Ungmennafélaginu verði gefin í afmælisgjöf rafræn útgáfa af Vitanum. Það rit myndi sóma sér vel á netinu við hlið myndasafna minjasafnsins í Vogum sem geymir mikilvæg augnablik í sögu byggðarlagsins. Þá á ungmennafélagið mikið safn ljósmynda sem gaman væri að væri aðgengilegt íbúum sveitarfélagsins.
Ungmennafélagsandinn er andi uppbyggingar, samhjálpar og góðra verka. Í Sveitarfélaginu Vogum hefur þessi andi varðveist í öflugu félagsstarfi og góðu mannlífi. Á 80 ára afmæli ungmennafélagsins ættum við öll að endurnýja þennan anda í hjörtum okkar um leið og við heiðrum starf þeirra fjölmörgu manna og kvenna sem lagt hafa ungmennafélaginu Þrótti lið í langri sögu þess.
Gott og öflugt Ungmennafélag er fjársjóður okkar allra - hjartanlegar hamingjuóskir.
Inga Sigrún Atladóttir
Forseti bæjarstjórnar
No comments:
Post a Comment