(Birtist í blaðinu 20. október)
1. Hvers vegna hefur þú áhuga á þingmennsku?
Frá því ég var unglingur hefur mig langað til að gera heiminn betri. Ég hef reynt að gera það með því að kenna börnum og unglingum, starfa með ungmennafélagshreyfingunni, í kristilegu starfi og í sveitarstjórn. Ég held að á Alþingi geti ég unnið áfram að hugsjóninni og þess vegna hef ég áhuga á þingmennsku. En það er auðvitað flokksmanna í VG og kjósenda í Suðurkjördæmi að meta hvort þeir vilja nýta krafta mína.
2. Hver er helstu hagsmunamál Suðurnesja í þínum huga?
Að hlúa að samfélögunum á svæðinu, vinna gegn einelti, styrkja innviðina og ná tökum á atvinnuleysinu sem hefur haft alvarleg áhrif á viðhorf íbúa. Ég vil beita mér fyrir nákvæmari og yfirgripsmeiri rannsóknum á háhitasvæðum á Reykjanesi og gæta þess að við nýtingu sé gætt að almannahagsmunum frekar en hagsmuna stórfyrirtækja. Ég vil beita mér fyrir því að gerð verði byggðastefna þar sem skilgreind er lágmarksþjónusta í hverju byggðarlagi og fjármagn til hennar tryggt. Ég vil efla gamla varnarsvæðið og búa okkur undir að þar verði staðsett alþjóðleg björgunarmiðstöð fyrir norðurslóðir sem myndi einnig taka yfir starfsemi Landhelgisgæslunnar og skyldra eftirlitsstofnanna.
3. Fáum við álver í Helguvík?
Ég held að álverið í Helguvík verði að veruleika fljótlega. Ég hefði frekar vilja sjá fleiri og minni fyrirtæki koma inn á svæðið sem væru í meiri tengslum við sérstöðu svæðisins–en þau hafa því miður látið á sér standa.
4. Hver er afstaða þín til ESB umsóknar?
Ég vil gera hlé á aðildarviðræðum því ég tel að stjórnsýslan og eftirlitsstofnanir á Íslandi séu ekki í stakk búnar til að vernda hagsmuni Íslands. Ég vil leggja áherslu á víðtæka stefnumótun í þeim málaflokkum sem semja á um og endurskipuleggja stjórnsýsluna og eftirlitsstofnanir þannig að þær geti betur gætt almannahagsmuna.
5. Þjóðaratkvæðagreiðsla um stjórnarskrána er laugardaginn 20. október. Er þetta alvörukosning eða eingöngu skoðanakönnun?
Mér er alveg sama hvað þjóðaratkvæðagreiðslan er kölluð–en ég ætla að kjósa.
No comments:
Post a Comment