Framboðslisti VG í Suðurkjördæmi var samþykktur á fundi kjördæmaráðs nýlega. Í heiðurssæti listans situr Guðrún Jónsdóttir, félagsráðgjafi. Á fundinum brýndi Guðrún fyrir frambjóðendum að baráttunni fyrir kvenfrelsi og gegn kynbundnu ofbeldi væri hvergi nærri lokið. Í stefnulýsingu listans er m.a. lögð áhersla á félagslegt réttlæti, kvenfrelsi og baráttu gegn spillingu. Í öllum þessum málum getum við litið til ævistarfs Guðrúnar Jónsdóttur og þannig dýpkað skilning okkar á þeirri heimssýn sem stefna VG byggir á.
Fyrst eftir nám starfaði Guðrún með fátækasta fólkinu í
Reykjavík. Hún var hluti af kerfi sem bar með sér það viðhorf að fátækt væri
eðlilegt hlutskipti ákveðins hluta af samfélaginu. Að sjálfsagt væri að fordæma
þá sem hallast stóðu og að ekki væri sjálfsagt að allir hlytu lagalega vernd í
samfélaginu. Í þessum aðstæðum vann Guðrún mikið frumkvöðlastarf við að berjast
fyrir því að fátækt fólk fengi þá mannvirðingu sem því bar, bæta réttarstöðu
þess og lágmarks mannréttindi.
Guðrún Jónsdóttir er flestum kunnug fyrir óþreytandi baráttu
fyrir kvenfrelsi og réttindum kvenna. Sú barátta er ekki sprottin úr tómarúmi
heldur úr því umhverfi þegar kosningaréttur, menntun og réttur til embætta í íslenskri stjórnsýslu
voru ekki hluti af veruleika íslenskra kvenna. Guðrún er einn af frumkvöðlum
Samtaka um kvennaframboð og tók þátt í að stofna Stígamót árið 1989, á
alþjóðlegum baráttudegi kvenna.
Það segir sig sjálft að slík baráttukona og frumkvöðull
rekur sig víða á veggi í samfélagi þar sem fastmótaðar reglur og hefðir tryggja
völd og áhrif ákveðinna hópa. Í starfi með fórnarlömbum fátæktar og ofbeldis
hefur Guðrún líka án vafa þurft að þola tortryggni og fordæmingu fyrir að vera
hluti af því kerfi sem hún alla tíð reyndi að breyta. Í flestu sem hún hefur
tekið sér fyrir hendur hefur hún mótað ný vinnubrögð, rutt brautina og boðið
stöðnuðum hugmyndum birginn. Slíkt hlutskipti er aldrei sjálfvalið heldur
krefst mikilla fórna og tryggð við sterkar hugsjónir og fjarlæga framtíðarsýn.
Hugsjóna- og baráttukonur eins og Guðrún Jónsdóttir mótast
ekki í tómarúmi heldur á langri göngu í samfélagi þar sem óréttur og
mannfyrirlitning eru meira metin en réttlæti og virðing. Guðrún lætur sér ekki
nægja að tala og taka þátt í pólitík - hún hættir ekki fyrr en hún sér
breytingar, kemur á fót nýjum venjum, betri stofnunum og mannlegra
lagaumhverfi.
Það er von okkar að við hin sem skipum lista VG í Suðurkjördæmi
getum horft til Guðrúnar og í það minnsta reynt að endurspegla þau gildi sem
spor hennar í íslensku samfélagi hafa markað.
No comments:
Post a Comment