Til er Persneskur málsháttur sem lýsir morði þar sem líkið er haganlega jarðsett og falleg blóm gróðursett á leiðið. Málshátturinn felur í sér hugmyndina um róttækan atburð í samfélagi sem ekki tilbúið að takast á við afleiðingarnar. Söguskilningur meirihlutans afneitar rótum og merkingu atburðarins og afgreiðir hann sem barnaskap, óraunhæfa hugsjón eða hluta af eðlilegri framvindu hins gamla skipulags.
Það getur verið að Búsáhaldabyltingin hafi ekki verið eins mikil bylting og margir vilja meina. Hins vegar má ekki líta fram hjá því að með Búsáhaldabyltingunni fékk hinn almenni borgari stjórnvöld til að hlusta á kröfur sínar í fyrsta skiptið í langan tíma. Afleiðingar Búsáhaldabyltingarinnar voru ekki það nýja samfélag sem margir höfðu gert sér vonir um en þó náðist sá árangur að rétt kjörin stjórnvöld fóru frá, ráðist var í að skrásetja aðdraganada hrunsins og margir gáfu fyrirheit um betri vinnubrögð. Það er engin ástæða til að vanmeta það.
Á þann hátt hafði Búsáhaldabyltingin mikil áhrif á samfélagið. Áhrifin hafa þó verið smátt og smátt verið að fjarlægjast og fleiri og fleiri eru farnir að gera lítið úr kröfunni um aukin áhrif almennings.
En hvað viljum við? Viljum við meiri áhrif almennra borgara, skýrari reglur, uppgjör við gömul vinnubrögð – eða er þetta allt bara aðeins of mikið vesen.
Afleiðingar Búsáhaldabyltingarinnar eru ekki ljósar í samfélaginu í dag. Enn er þó of snemmt að segja til um hvort búið sé að jarða og gróðursetja falleg blóm á leiðið. Það fer eftir okkar eigin framlagi hvort svo verður.
No comments:
Post a Comment