18.1.13

Eru hælisleitendur hagsýnir túristar?

Í ummælum Kristínar Völundardóttur, forstjóra Útlendingastofnunnar í gær kom fram að hún telur að einhverjir hælisleitendur sem hingað koma sjái það sem vænlegan kost að óska eftir hæli á Íslandi í því skyni að fá frítt uppihald á meðan þeir kynnast landi og þjóð. Kristín bendir hér á nýtt sjónarhorn á málefnum hælisleitenda sem hún illu heilli getur ekki stutt neinum rannsóknum. Ef eitthvað er hæft í því sem Kristín segir þá veitir það okkur ómetanlega innsýn í hugarheim hælisleitenda og gæti varpað áhugaverðri birtu á þá staðalmynd sem við flest höfum af hælisleitendum. Hér ætti að vera áhugavert efni fyrir raunverulega rannsóknarblaðamennsku.
Við vitum að útlendingar sem hingað koma eru ekki allir stál heiðarlegir. Mörg okkar muna eftir faðmlagi Kio Briggs og Helga lögmanns þegar Kio var sýknaður fyrir innflutning á E-töflum. Faðmlagið undirstrikaði að réttlætið hafði náð fram að ganga. Gleðibylgjan dofnaði aðeins þegar Kio fór fram á 27 milljónir króna í skaðabætur frá ríkinu og hvarf svo næstum alveg þegar Kio var tekinn fyrir innflutning á eiturlyfjum til Danmörku nokkrum mánuðum síðar. Ég er þó ekki að segja að Kio hafi endilega verið sekur og ég er ekki að gefa í skyn að allir hælisleitendur séu glæpamenn. Það er þó eðlilegt að gera ráð fyrir því að misjafn sauður geti verið í mörgu fé – hvort sem átt er við íslendinga eða erlenda borgara.
Nú finnst mér aðkallandi að komist verði til botns í því hvort ummæli Kristínar eiga sér einhverja stoð í raunveruleikanum. Mér finnst sjálfsagður réttur hælisleitenda, Útlendingastofu og almennra borgara að fá skýringar á þessum ummælum. Á hverju byggir Kristin ályktanir sínar? Getum við samþykkt það orsakasamhengi sem hún hefur tekið eftir? Telur hún að þetta séu útbreitt vandamál? Eru hugsanlega skipulagðar ferðir hingað til lands í þessum tilgangi?
Við þurfum ekki að hræðast þessar spurningar og ef vel er að umræðunni staðið munu hælisleitendur græða á henni, það er hins vegar hælisleitendum ekki til framdráttar að hálfkveðnar vísur séu látnar liggja ókannaðar, sérstaklega þegar þær koma frá svo valdamikilli manneskju og forstjóra Útlendingastofnunar.

No comments:

Post a Comment