Í umræðu á þinginu í morgun segir Birgir Ármannsson að nýja stjórnarskáin sé byggð á veikum grunni og hann fagnar því að alþingsimenn séu nú með raunhæfari hugmyndir um stjórnarskrá en áður hafði verið.
Skilningur Birgis á raunhæfum hugmyndum veldur mér áhyggjum.
Ég veit ekki hvað þingmenn eru að hugsa og ég vona að meirihlutinn sé meðvitaður um að grunnur nýju stjórnarskránnar sé ólíkur þeim sem nú er byggt á. Munurinn liggur ekki í því að nýja stjórnarskráin sé illa unnin, óraunhæfari eða lélegri en sú gamla.
Nýja stjórnarskráin er ólík vegna þess að hún byggir á nýrri hugsun um völd og eignarhald á samfélaginu. Í samfélögum um allan heim eru líkar breytingar að gerjast. Krafa um að völdin séu færð frá forréttindahópum til almennings. Það felur ekki í sér ófrið eða óskipulag – það felur einfaldlega í sér nýjar hugmyndir og nýja tegund lýðræðis.
Ég veit vel um hvað ég er að tala. Meistararitgerðin mín sem ég skilaði fyrir útskrift nú 2013 fjallar um nýjustu kenningar um vald og lýðræði. Við á Íslandi erum vissulega að fara nýjar leiðir með nýju stjórnarskránni en sú leið er ekki úr lausu lofti gripin heldur byggir hún á hugmyndum sem nú móta vinnubrögð fólks víða um heim.
Heildarendurskoðun með breytingu á grundvallarhugmyndum er því algerlega nauðsynleg. Nýja stjórnarskráin tekur einmitt á því sem fór úrskeiðis í hruninu þegar aðhald stofnana og almennings brást. Þess vegna verður að endurhugsa valdið í samfélaginu þannig að einstaka valdamenn geti ekki haft þróun samfélagsins í höndum sér. Allar hugmyndir í stjórnarskránni um lýðræði, sterkar stofnanir, mannréttindi og aðgengi að upplýsingum vinna að því að koma í veg fyrir þau vinnubrögð sem fyrir hrun gengu allt of langt.
No comments:
Post a Comment