Samkvæmt frétt á Smugunni hefur útgerðin Ögurvík skilað yfir 140 milljóna króna hagnaði árið 2010 en greiddi enga skatta. Framkvæmdastjóri útgerðarinnar hefur fullyrt að allur hagnaður fyrirtækisins þetta ár hafi farið í veiðigjald og 22 milljónir króna umfram það. Ekkert er getið um það í ársreikningi fyrirtækisins fyrir þetta ár.
Þetta er ótrúlegur málflutningur og ef þessi frétt er rétt kallar hún á rannsókn á málflutningi þeirra útgerða sem haldið hafa svipuðu fram. Ég hef talað við fjölda manns um sjávarútveg og veiðigjald undanfarnar vikur. Margir eru mjög reiðir og halda fram dæmum um Ögurvík og önnur útgerðarfyrirtæki. Margir telja í raun og veru að veiðigjaldið geri útgerðir gjaldþrota. Framkvæmdastjóri Valfells í Ólafsvík Georg Gísli Andersen hefur líka haldið slíku fram og tekið dæmi sem heiðarlegt fólk hefur ekki séð ástæðu til að rengja.
Þegar ég hef rætt við fólk í sjávarbyggðum hef ég reynt að skilja þetta mál. Í einu tilviki voru ég og félagar mínir rekin burt vegna veiðigjaldsins, þá var nýútkomin skýrslu Deloitte sem staðfesti útreikningana Ögurvíkur. Við fengum ekki að lesa skýrsluna en okkur datt þó ekki annað í hug en þar væri farið með rétt mál.
Það er ótrúlegt að vera þátttakandi í þessum farsa útgerðarmanna. Þrátt fyrir að ég sé búin að kynna mér veiðigjöldin nokkuð vel fannst mér að allur sá fjöldi sem fordæmir veiðigjaldið geti ekki haft rangt fyrir sér. Með frétt Smugunnar lítur út fyrir að í máli Ögurvíkur éti hver eftir öðrum „staðreyndir“ sem ekki eiga sér nokkra stoð í raunveruleikanum.
Nú þyrftum við að sjá skýrslu Deloitte og einhver góður fjölmiðill ætti að fara í skoða gagnrýnið dæmi Georgs Gísla Andersens.
No comments:
Post a Comment