25.3.13

Eineltismenning

Einelti er víða að finna í íslensku samfélagi og menningu. Uppnefni og háðsvísur fyrri tíma eru skemmtileg heimild um mannlíf á Íslandi en um leið endurspegla þær að ekki hafa allir þegnar samfélagsins verið metnir að verðleikum.
Umræða um einelti meðal barna hefur verið áberandi síðustu ár. Lítil umræða hefur þó farið fram um einelti og kúgun fullorðins fólk. Á fjölmörgum stöðum á Íslandi er á hverjum degi reynt er að halda fólki niðri með ósannindum og árásum.
Í rannsóknum á einelti á íslenskum vinnustöðum hefur komið fram að viðvarandi átök eiga sér stað á fjölda vinnustaða þar sem ákveðnir hópar eða einstaklingar taka að sér að stjórna öðrum. Stýringin birtist í ýmsum myndum s.s. í þöggun, bælingu, átökum, upplifun fólks á valdaleysi innan stofnunarinnar og upplifun á því að sérfræðiþekking og sérhæfing þeirra væri vannýtt. Einelti sóar mörgum vinnustundum á ári og eykur á fjarvistir vegna veikinda. Þegar starfsmenn voru spurðir um þætti í samskiptum sem stuðla að einelti nefndu þeir m.a. samkeppni og öfund.
Einelti er að finna í öllum starfstéttum. Það mun viðgangast meðan fólk lítur upp til þeirra sem gera lítið úr öðrum og finna þá einu leið til að láta á sér bera að gera lítið úr öðrum. Ómálefnalegar árásir, lygar og þvæla ríða nú húsum í aðdraganda kosninga. Heilu framboðin gera út á að gera lítið úr andstæðingnum og sannfæra kjósendur um að þeir séu einskis virði nema þeir gangi í lið með þeim sem hæðst öskra.
Slík umræða er ekki kjósendum bjóðandi
Í öllum skólum landsins er ætlast til þess að börnin berjist gegn einelti, standi upp og láti ekki bjóða sér nýð um skólafélaga sína.
Hvers vegna er þetta svona erfitt fyrir okkur fullorða fólkið?

No comments:

Post a Comment