23.3.13

Samtal um veiðigjald

Fyrir nokkru skrifaði ég grein þar sem ég gagnrýndi málflutning útgerðamanna í veiðigjaldamálinu. Ég nefndi sérstaklega málflutning Hlyn Sigurðssonar framkvæmdastjóra Ögurvíkur og var hann ósáttur við gagnrýni mína.
Í dag heyrði ég í Hlyni og við áttum gagnlegt spjall. Við vorum sammála um að þessi mál þyrftu að ræða án áróðurs og upphrópanna.
Það var alveg skýrt í mínum huga að fólkið í landinu á að fá sameiginlegan arð af auðlindum. Við vorum sammála um að þá ætti að skattleggja allar sameiginlegar auðlindir,  ekki bara fiskinn í sjónum.
Ég sagði honum að mér þætti LÍÚ ganga fram með áróðri og röngum upplýsingum gagnvart stjórnvöldum og honum þótti Vinstri græn vera með fordóma gagnvart sjávarútvegnum. Hann taldi mig vera með áróður í skrifum mínum og mér fannst hann og félagar hans í LÍÚ vera með áróður í sínum auglýsingum. Við urðum sammála um að fólk þyrfti að hlusta hvort á annað.
Hlynur taldi að við útreikning á veiðigjaldi ætti ekki að miða við árin á undan við skattlagningu. Ég taldi að það væri líkt og með vörsluskatta þar sem geyma þarf gjöld fyrra tímabils til þess næsta þó hagnaður tímabila sé ólíkur. Það þótti honum ekki góð samlíking og lagði til að ég kynnti mér málið betur.
Veiðigjaldið er föst krónutala fyrsta árið en síðar hlutfall af hagnaði. Það er því rétt að fyrsta árið getur gjaldið verið hærra en hagnaður. Mér finnst ekki sanngjarnt að líta aðeins til fyrsta ársins þegar afkoma greinarinnar er skoðuð.
Hlynur sagði mér margt um ólíka stöðu útgerða, að kvótakaup veittu meiri frádrátt en t.d. kaup á skipum og veiðafærum. Okkur fannst það ekki vera sanngjarnt.
Við náðum ekki að skilja hvort annað og kanski er það til of mikils ætlast. En ef einhver sem les þetta getur skrifað uppbyggilegar og upplýsandi ábendingar til okkar Hlyns þá er það vel þegið.

No comments:

Post a Comment