Ég var í vikunni þar sem hlutverk mitt var að gæta almannahagsmuna gagnvart hálf -opinberu fyrirtæki. Til að styrkja okkur í því eftirlit fengum við ráðgjafa frá skrifstofu út í bæ sem tók út samning sem við störfuðum eftir og lagði faglegt mat á efndir og áherslur. Á fundinum hafði ráðgjafinn það hlutverk að standa á niðurstöðu athugunarinnar og verja hana, stundum undir óverðskulduðum dylgjum stjórnenda fyrirtækisins.
Þá fór ég að hugsa um Almennu verkfræðistofuna sem gerði skýrslu fyrir Sveitarfélagið Voga þar sem meta átti áætlanir Landsnets um lagningu jarðstrengs og loftlínu í gegnum Sveitarfélagið. Þeir unni skýrslu þar sem sýnt var fram á að fullyrðingar Landsnets um að jarðstrengur væru ekki raunhæfur valkostur stæðuðust ekki þrátt fyrir að Landsnet héldi því statt og stöðugt fram.
Þegar málið var tekið fyrir í nefndum Alþingis voru fulltrúar Almennu verkfræðistofunnar kallaðir til að skýra út niðurstöður sínar og á sama fund mættu fulltrúar Landsnets. Fulltrúar Landsnets réðust mjög ómaklega að Almennu verkfræðistofunni. Oftar en einu sinni og oftar en tvisvar fann ég til innilegs þakklætis til Almennu verkfræðistofunnar sem undantekningalaust útskýrði mál sitt faglega og á skýran hátt. Út úr þeim málflutningi var stöðugt snúið.
Ef ég ætlaði að ráða mér verkfræðistofu þá myndi ég versla við almennu verkfræðistofuna. Mér finnst mjög leiðinlegt að hafa dregið stofuna niður í þann forarpytt sem við lentum í, það var óverðskuldað. Þess vegna vil ég hvetja alla sem vilja að almannahagsmunir nái fram að ganga í þessu landi að kjósa Almennu verkfræðistofuna. Það skiptir öllu máli að ráðgjafar stjórnvalda séu óháðir og vandaðir og það sýndu þeir svo sannarlega í þessu máli.
No comments:
Post a Comment