Nýkjörinn þingmaður sjálfstæðisflokksins sagði á dögunum að skapandi greinar gæfu ekki mikið af sér. Grunngreinarnar væru það sem gæfi af sér, skapandi greinar væru aðeins fjárútlát úr ríkissjóði. Fullyrðingar af þessum toga bera með sér vanþekkingu á íslensku atvinnulífin og ber þess merki að þingmaðurinn hefur ekki fylgst með þróun á þeim vettvangi síðustu 10 ár.
Í skýrslu sem gefin var út árið 2009 voru reiknuð út hagræn áhrif skapandi greina á Íslandi. Byggt var á gögnum frá Fjársýslu
ríkisins, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og virðisaukaskattsskrám frá tímabilinu 2005–2009. Niðustaða skýrslunnar er að mati skýrsluhöfunda vanáætlaður því mörg fög innan skapandi greina eru undaþegin virðisaukaskatti og koma því ekki fram í heildarniðurstöðum og gerir það að verkum að tölur um þessar greinar eru lægri en raunveruleg velta.

Helstu niðurstöður eru að skapandi greinar hér á landi veltu 189 milljörðum árið 2009. Hlutur hins opinbera er um 12,5% af heildarveltu greinanna. Ársverk sama ár voru 9371. Útflutningstekjur skapandi greina voru um 24 milljarðar árið 2009 eða um 3% af heildarútflutningstekjum þjóðarinnar. Velta skapandi greina hefur haldist nokkuð stöðug þrátt fyrir efnahagslega lægð í öðrum
atvinnugreinum og ársverkum hefur fjölgað.
atvinnugreinum og ársverkum hefur fjölgað.
Það er áhugavert að skoða heildaráhrif hrunsins á skapandi greinar. Því margt bendir til þess að þessi iðnaður hafi meiri alögunarhæfni og vaxtarmöguleika í kreppu en margar aðrar starfsgreinar. Velta skapandi greina hefur haldist nokkuð stöðug þrátt fyrir efnahagslega lægð í öðrum atvinnugreinum og störfum hefur fjölgað. Velta ríkisins í menningar- og fjölmiðlamálum hefur nokkurn veginn staðið í stað en séraflatekjur ríkishluta hækkað hlutfallslega. Starfsfólki leikhúsanna hefur fækkað á sama tíma og mikil fjölgun hefur átt sér stað í aðsókn að uppfærslum leikhúsanna. Einu stóru áhrifin af hruninu er að sjá hjá arkítektum en arkitektar fylgja byggingariðnaðinum sem hefur verið í mikilli lægð frá árinu 2008. Á verðlagi hvers árs má sjá að velta í „starfsemi arkitekta“hefur farið niður fyrir helming þess sem var fyrir hrun.
No comments:
Post a Comment