Í hádegisfréttum kom fram að fjármálaráðherra telur koma til greina að fá Landsvirkjun til að selja álverinu í Helguvík orku.
Það virðist því eiga að beita ríkisfyrirtæki handafli þar sem álverið kemst ekki í gang nema raforka fáist á spottprís. Raforkuverðið sem álverið setur upp er svo lágt að óhugsandi er að nokkurt orkufyrirtæki gangi frjálst til slíkra samninga.
Fjármálaráðherra hefur áttað sig á þessu. Þá er bara að beita pólitískum þrýstingi á ríkisfyrirtæki, arður til almennings skiptir þar engu máli.
Nema Landsvirkjun verði seld með góðum afslætti til þeirra sem vilja gefa álverinu í Helguvík orku.
No comments:
Post a Comment