17.5.13

Svör Sigmundar Davíðs

Ég hef einlægan áhuga á að vita hvort ríkistjórnin sem ég studdi allt kjörtímabilið hefur verið að blekkja og fela í ríkisfjámálum. Þetta hef ég heyrt Sigmund Davíð endurtaka og endurtaka og endurtaka......... svo oft að ég er næstum farin að trúa honum. 
En mig langar þó ennþá til að vita (nokkuð nákvæmlega) hvað Sigmundur Davíð var að meina.
Er hann að tala um framúrkeyrslu vegna óvæntra verkefna eða er hann að tala um að tölur hafi beinlínis verið falsaðar.  Er hann að tala um að ekki sé farið eftir spá seðlabankans eða að raunvirði eigna og skulda sé bókfært rangt.
Ég vil endilega vita þetta.
Það er ekki til þess að níða Sigmund Davíð eða fegra fyrrverandi ríkistjórn, það er ekki vegna þess að ég tapaði í kosningum og er tapsár. Það er ekki vegna þess að sannleikurinn hjóti að vera ríkistjórinni í hag, ég er ekki það einföld að halda að mitt lið hafi rétt fyrir sér, alltaf – allsstaðar.
Mér finnst Sigmundur Davíð áhugaverður maður. Ég hef fylgst með honum frá því hann kom fyrst fram sem álitsgjafi í Silfrinu. Hann hefur sterkar skoðanir sem stundum eru skrítnar. Ég hef ekki alltaf fengið allt sem hann segir til að passa en hef ekki oft haft rökin sem þarf til að sýna fram á það.
Nú þegar hann er sigurveigari kosninganna finnst mér standa upp á hann að svara skýrt hvaða blekkingar (nákvæmlega) hann er að meina.
Mér finnst ekki eðlilegt að ég þurfi að hætta að spyrja bara vegna þess að einhverjum finnist spurningin bera vott um öfundsýki, valdagræðgi eða meinfýsni.
Mér finnst ekki eðlilegt að ég hætti að spyrja til að aðrir geti fengið að vera áfram í sínu stuði.

No comments:

Post a Comment