Á síðustu dögum Umhverfis og auðlindaráðaneytisins úrskurðaði ráðaneytið að Landsnet væri stjórnvald
Þessi ákvörðun lætur lítið yfir sér er í viðbrögðum forstjóra Landsnets í fréttum þann 23. mars er ljóst að þessi ákvörðum hefur mikil áhrif á fyrirtækið.
Þessi ákvörðun lætur lítið yfir sér er í viðbrögðum forstjóra Landsnets í fréttum þann 23. mars er ljóst að þessi ákvörðum hefur mikil áhrif á fyrirtækið.
Niðurstaðan er mjög mikilvæg fyrir sveitarstjórnir, landeigendur og aðra sem hafa átt í glímu við Landsnet undanfarin ár.
Lagning raforkukerfis sem fyrst og fremst miðast við þarfir stóriðju snýst ekki aðeins um umhverfisáhrif og kostnað. Hún snýst líka um lýðræði, lýðræðishalla og þá ósamkvæmni í upplýsingum sem alltaf er til staðar þegar sveitarstjórnarmenn og landeigendur eiga í viðræðum við Landsnet.
Sveitarstjórnarmenn hafa þá skyldu að kynna sér að fullu þau málefni sem þeir eiga að taka ákvörðun um. Þegar er um að ræða flutningskerfi raforku er nær ómögulegt fyrir sveitarstjórnarmenn að afla sér óhlutdrægra upplýsinga um kostnað og mögulega/fáanlega tækni.
Í krafti þess að Landsnet starfar á grunni laga og er fyrirtæki í eigu ríkisins hefur mér þótt ljóst að fyrirtækið væri stjórnvald. Nú þegar úrskurðurinn liggur fyrir er í fyrsta skipti hægt að kæra fyrirtækið fyrir það ofurvald sem fyrirtækið hefur beitt í krafti sérþekkingar og einokunar.
Þannig þarf fyrirtækið nú að sýna fram á að það hafi sinnt upplýsingaskyldu og gætt meðahófs og jafnræðis í framkvæmd kerfisáætlunar sinnar.
Það er mikilvægt í góðu samfélagi að fyrirtæki sem kostað er af almennafé og rekið í almannaþágu beiti ekki yfirburðum sínum til að knýja fram niðurstöðu. Í því samhengi er úrskurður Umhverfis og auðlindaráðuneytisins afar afar mikilvægur.
No comments:
Post a Comment