4.6.13

Skýrsla um Íbúðalánasjóð I

Kolsvört skýrsla rannsóknanefndar um Íbúðalánasjóð birtir veruleika sem margir kannast við sem hafa starfað í íslenskri pólitík og stjórnsýslu.
Eins og kemur fram í skýrslunni er ekki við neinn sérstakan að sakast, þetta er einfaldlega menningin. Illa unnar, illa undirbúnar og illa ígrundaðar ákvarðanir stjórnar Íbúðalánasjóðs hafa kostað íslenska ríkið milljarða og enginn ber sérstaklega ábyrgð.
Mikil og góð vinna fer víða fram. Oft eru málin unnin mjög vel og faglega, rök lögð á borðið og vafamál reifuð í skjölum.
Mín reynsla er að það séu yfirleitt lokaákvarðanir sem eru höfuðvandamálið. Þær byggja oft á ákvörðun pólitíkusa sem ekki hafa lesið skjölin, nenna ekki að setja sig inn í málið en treysta að brjóstvitið og kunningjatengsl færi þeim sannleikan um málin. Það er yfirleitt rangt mat.
Stundum eru ákvarðanir reyndar undirbyggðar á annan hátt. Þá hefur einn pólitíkusanna úr hópnum skoðun eða hagsmuni að ákveðinni niðurstöðu. Hann hefur þá samband við meirihluta þeirra sem koma að ákvörðunni og tryggir þannig meirihluta fyrir sinni skoðun. Umræðan um málið verður þannig frá upphafi sýndarmennska. Líkt og í dæminu á undan þá þjónar í því tilviki ekki tilgangi sínu að lesa skjölin, kynna sér málin eða setja sig inn í fleiri sjónarmið en sitt eigið.
Þessi menning er verulegt vandamál á Íslandi og þarna eiga átök sér stað milli þeirra sem vilja vanda sig og þeirra sem telja það veikleikamerki að vanda ákvarðanir og starfa að almannahagsmunum. Þessi menningarátök skapa mikla pólitíska togstreytu.
Íslenskar rannsóknir hafa sýnt að pólitísk átök móta menninguna víða. Í stjórnunarfræðum er þessi menning kölluð míkró-pólitík. Míkro-pólitík birtast í samskiptum fólks og í þeim aðferðum sem notuð eru til að takast á við átök. Viðvarandi átök eiga sér staða víða í samfélaginu milli ólíkra menningarafla og stjórnunaraðferða sem oft valda meiriháttar menningarárekstri. Átökunum fylgir stýring (e. manipulation) sem birtist í ýmsum myndum s.s. í þöggun, bælingu, átökum, upplifun fólks á valdaleysi og upplifun á því að sérfræðiþekking og sérhæfing þeirra væri vannýtt.
Rannsóknir á míkró-pólitík hafa sýnt fram á að hún á sér stað þar sem stjónun er ekki fullnægjandi og átökum er leyft að eiga sér stað án þess að reynt sé að komast að rót þeirra.
Það er reynsla mín eftir rannsóknir á míkró-pólitík og nokkra ára starf í íslenskri stjórnsýslu og pólitík að míkró-pólitík sé ekki aðeins afmarkað vandamál á Íslandi heldur er hún ríkjandi menning í íslenskri pólitík og stjórnsýslu.
Ástæðan er sú sama og rannsóknarnefnd um Íbúðalánasjóð dregur fram: skortur á góðum upplýsingum, hæfni, fagmennsku, gegnsæi, ábyrgð 0g skýrri forystu.

No comments:

Post a Comment