Mikið var ég ánægð að sjá að íslendingar ætla ekki að láta gagnrýni og nýð eins og lesa má hér stöðva málefnalega umræðu um álvers uppbygginu í Helguvík. Nú hefur Júlíus Jónsson forstjóri HS orku stigið fram og staðfest það sem ég hélt fram fyrir kosningar að í núverandi stöðu er ekki hægt að reka hagkvæmt álver og hagkvæmar virkjanir á sama tíma. Þessa staðreynd þarf að ræða og horfast í augu við afleiðingarnar.
Hitt er svo annað mál að ég deili af fullum hug áhyggjum þeim sem í nokkrum greinum hafa haft áhyggjur af atvinnumálum á Suðurnesjum. Uppbygging nýrra atvinnutækifæra gengur allt of hægt og margir sem hafa verið atvinnulausir eru í vinnu sem þeir geta ekki treyst á til framtíðar. Ástandið á vinnumarkaði á Suðurnesjum er þannig að hægt er að halda niðri launum, setja fram óraunhæfar kröfur til starfsmanna og skapað óeðlilegt valdajafnvægi milli atvinnurekenda og launþega.
Þetta er raunverulegt vandamál sem allir 7 þingmenn sem búa á Suðurensjum ættu að benda á í stað þess að einblína á álver í Helguvík eins og það sé eina atvinnan sem hægt sé að byggja upp á Suðurnesjum.
No comments:
Post a Comment