17.5.14

Skuldaniðurfellingin

Í morgun hef ég verið hugsandi yfir skuldaniðurfellingunni sem var samþykkt í nótt.
Ég hef virkilega fundið fyrir hækkandi lánagreiðslum eftir hrun, allar vörur eru dýrari og varla er komið inn í opinbera stofnun eða fyrirtækja án þess að borga einhver þjónustugjöld.
Ég er þó í betri aðstöðu en margir sem ég þekki
Helst vildi ég að ég þyrfti ekki að taka við bótum, niðurgreiðslum, frístundakortum eða  niðurfellingum.  Mig langar ekki að kjósa þá flokka sem bjóða lausnir sem eru settir fram sem happdrættisvinningar, en breyta raunverulega engu.
Mig langar að kjósa flokka sem setja fram raunverulega framtíðarsýn fyrir samfélagið og mig langar að kjósa þá sem ég trúi að geta komið þeirri sýn í framkvæmd.
Mig langar að kjósa þann sem þorir að ráðast gegn íslenska klíkukerfinu og  óhjákvæmlegri afleiðing þess: íslensku láglaunastefunni.
Ég vil ekki eiga framtíð mína undir peningagjöfum hér og þar, ég vil ekki þurfa að horfa á heilu þingflokkana fagna afsláttarmiðum til almennings eins og þeir hafi persónulega unnið íþróttakappleik.  Ég vil bara fá að lifa í friði, geta séð fyrir sjálfri mér og fjölskyldu minni með þeim peningum sem ég vinn mér inn eftir fullan vinnudag.
En á Íslandi á fólk ekkert val.
Þrátt fyrir þetta allt ætla ég að sækja um skuldaniðurfellingu – mér finnst heimskulegt að gera það ekki.
En helst vil ég að landinu sé  stjórnað af fólki sem hefur dug í sér til að skapa samfélag þar sem skuldaniðurfellingar eru óþarfar.

No comments:

Post a Comment