19.4.13

Almannahagsmunir


Það vakti talsverða athygli í gær þegar ég talaði um að ég nennti ekki lengur að hugsa á atvinnurekendur barma sér yfir skattpíningu  ríkistjórnarinnar.
Að ég ætlaði að berjast í pólitík fyrir almannahagsmunum en ekki sérhagsmunum.
Ég get ekki að því gert að mér finnst fyrirtæki og fjármagnseigendur ráða allt of miklu í þessu samfélagi. Það skapar verra og ófrjálsara samfélag. Margir eru sammála mér í því og finnst mikilvægt að breyta því.
Í þessu myndbandi frá Vinstri grænum í Suðurkjördæmi tölum við um völdin í íslensku samfélagi.
Ég segi líka frá því hvernig lífið var í bænum þar sem ég ólst upp – það sem einn maður og eitt fyrirtæki hafði öll völd.

No comments:

Post a Comment