Um daginn ræddi ég við konu sem almennt hefur ekki áhuga á pólitík og bankamálum. "auðvitað er það ömurlegt að það sé til þessi trygging sem lögð er á lánin. Við vorum búin að skoða þetta hjá okkur. En svo sagði ég sagði bara við manninn minn: Nú hættum við að skoða breytingarnar á höfuðstólnum, það er bara bannað á okkar heimili".
Það er auðvelt að benda á hvað þetta er heimskuleg athugasend en þessi kona er ekki heimsk - og alls ekki illa inni í hlutunum. Þetta var ekki sagt vegna þess að hún væri sátt við kerfið hún gerir þetta til þess að þurfa ekki að horfast í augu við að verðtryggingarkerfi bankanna er ekki réttlátt. Heldur byggt upp í kringum þarfir fárra á kostnað fjöldans.
Verðtryggingin snýst ekki um lánin mín sem hafa hækkað þannig að öll börnin hafa fengið króníst ógeð á núðlum og hafragraut. Hún snýst ekki heldur um foreldra mína sem þurftu að greiða ótal sinnum þá upphæð sem þau tóku að láni 1980. Málið snýst ekki heldur um okkur hjónin sem borga í lífeyrissjóð háa upphæð - sem svo sannanlega kæmi sér betur að geta notað í bensín. Ekki fremur en að málið snúist um lífeyrisgreiðslur foreldra minna sem eiga varla fyrir afmælisgjöfum til barnabarnanna þó þau fegin vildu.
Umræðan um verðtrygginguna snýst um þau lögmál sem við viljum að gildi í samfélaginu - þau prinsipp sem við viljum standa vörð um og þann anda sem við viljum að ríki í samfélaginu.
Nú berjast ýmsi einstaklingar og hópar gegn þessum órétti - á móti berjast önnur öfl fyrir óbreyttu ástandi. Almenningur sem ekki nennir að setja sig inn í hagstjórn og pólitík forðast að skoða lánayfirlitin í von um að geta haldið í hugmyndina um gott og réttlátt íslenskt samfélag.
Grundvallaratriði er að við þurfum ekki að búa í þannig samfélagi að þeir sem því stjórna geti ekki forðað sér frá afleiðingum óstjórnar með því að velta afleiðingum beint yfir á almenning.
Hvernig geta stjórnmálamenn látið það viðgangast að bankar geti látið almenning skrifa upp á að bætt sé við höfuðstól lána í hverjum mánuði - einhverri upphæð - sem fer eftir því hvað stjórnvöld og fyrirtækjaeigendur ákveða að leggja á lífsnauðsynjar.

No comments:
Post a Comment