Það er mikill munur á grunnskóla og leikskóla. Leikskólar eru yfirleitt litlir með viðmið um fá börn á hvern kennara á meðan fjöldi barna í umsjón hvers kennara getur farið vel yfir 20 í grunnskóla. Það er líka mikill munur á börnum milli þessara skólastiga. Menntunin sem fram fer í leikskólum er jafnmikilvæg grunnskólamenntuninni þó henni sé hagað á allt annan hátt.
Það er góð þroskafræðileg ástæða fyrir því að langflest lönd
miða við 6 ára sem fyrsta ár grunnskólans og aðeins 11% allra landa í heiminum
láta hann byrja fyrr. Það er vanhugsað hjá Hildi Björnsdóttur, oddvita
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, að leiðin til að spara fjármuni sé að stytta
leikskólann og að þá verði hægt að taka þar inn fleiri börn. Að þessari hugmynd
sé ætlað að upphefja leikskólastarfið og leysa mönnunarvandann staðfestir að
ekki hefur verið talað við marga kennara um hugmyndina.
Ánægja foreldra með leikskóla
Ég efast um að margir foreldrar fagni þeirri snöggsoðnu
hugmynd að færa fimm ára barnið þeirra í grunnskóla. Þau sem hafa verið með
barn í grunnskóla þekkja þann gífurlega mun sem er alla jafna á nálgun og
umhverfi barna milli þessara skólastiga. Af hverju að taka gleðina og
áhyggjuleysið sem börn njóta í leikskólum frá þeim ári fyrr?
Foreldrar treysta leikskólum vel fyrir börnunum. Það er ekki
sjálfgefið þegar um ræðir það dýrmætasta af öllu í lífi foreldra enda gera þeir
miklar kröfur til leikskólastarfsfólks. Á hverju ári eru gerðar ánægjumælingar
og leikskólar státa af ánægðum foreldrum. Traust og ánægja foreldra og gæði
þjónustunnar eru afleiðing þess að í leikskólanum starfar fagfólk sem þekkir
þroska yngstu Reykvíkinganna vel og hefur byggt upp umhverfi sem hentar.
Verndum æskuna
Það eru mikil viðbrigði fyrir börnin að hefja
grunnskólagöngu, þar sem aðrar og nýjar kröfur eru gerðar til þeirra. Til eru
dæmi um fimm ára bekki við grunnskóla sem og samrekstur leik- og grunnskóla þar
sem vel hefur tekist til og ánægja barna, foreldra og kennara er mikil. Það er
hins vegar allt annað en kerfisbreyting sem hefði áhrif á alla skóla
borgarinnar, miklar breytingar í starfsmannahaldi og ófyrirséðan kostnað.
Þau börn sem eru í leikskóla í dag gætu orðið yfir 100 ára
gömul. Viðreisn vill ræða um allt lífskeið Reykvíkinga með þá framtíðarsýn í
huga að öll eigi að fá notið hvers æviskeiðs sem best. Umræða um styttingu
skólastiga er í hrópandi mótsögn við þá stefnu. Það er eðlilegra að huga að
lengri tíma þar sem leikurinn ræður för þar sem menntun er hluti af öllu
lífsskeiðinu. Við byggjum áfram upp gott leikskólastarf og tryggjum með því
góða menntun og öruggt umhverfi, í leikskólum sem eru hannaðir til að mæta börnum
á fyrsta æviskeiðinu. Verndum æskuna.
No comments:
Post a Comment