11.3.25

Ofbeldi barna gagnvart kennurum

Í gær var á Stöð 2 viðtal við Soffíu Ámundadóttir kennara um ofbeldi nemenda gagnvart kennurum. Nú ætla ég ekki að draga úr alvarleika þess sem Soffía talar um en ég vil benda á að þegar barn ræðst á kennara er það barn að öllu jöfnu búið að ráðast á tugi barna og misþyrma þeim andlega og líkamlega án þess að skólinn hafi stöðvað það. Ofbeldi nemenda gagnvart kennurum er því ekki sérstakt vandamál heldur aðeins toppurinn á ísjakanum á stærra og alvarlega máli.

Hluti af því vandamáli er vegna þess að skólinn hlustar ekki nógu vel á foreldra og börn, ekki vegna þess að foreldrar hlusta ekki nógu vel á skólann. Á sama hátt og það er ekki fyrsta viðbragð barns að ráðast á kennarann er það ekki fyrsta verk foreldra að mæta með lögfræðinga í skólann. Foreldrar mæta með lögfræðinga í skólann vegna þess að á þá er ekki hlustað, barnið þeirra fær ekki viðunandi lausn í skólanum og aðferðir sem skólinn býður virkar ekki til annars en að framlengja vandann. 

Það vantar auðmýkt í skólakerfið, að viðurkenna vandann og viðurkenna að kennarar hafa ekki lausnir, auðmýkt gagnvart því að kanski hafa foreldrar lausnina eða hægt er að foreldrar og kennarar vinni saman að lausn vandans. Það er ágætt að vera sérfræðingur en foreldrar og barnið sjálft eru þó alltaf meiri sérfræðingar í líðan og upplifun barnsins en sá sem hefur kennslufræðileg og uppeldisfræðilega sérþekkingu. 

Skólar hafa ekki nægar leiðir til að fara en þeir hafa samt margfalt meiri aðgang að sérfræðingum og úrræðum en foreldrar og börn. Skólar hafa vald sem foreldrar hafa ekki og stuðning stjórnkerfis og lögfræðinga sem fæstir foreldrar gætu látið sig dreyma um. Í því samhengi eru foreldrar alltaf valdaminni en starfsmenn skólans og það er mikilvægt að muna það í allri umræðu um samskipti heimilis og skóla. 

Ofbeldi barna gagnvart kennurum er birtingarmynd valdaleysis barnsins og foreldra þess, hegðun sem felur í sér uppgjöf gagnvart skólakerfinu og fyrirlitningu gagnvart skólastarfi og getu þess til að koma með úrræði sem virka. 

Ofbeldi barns gagnvart kennara er hegðun barns sem hefur í skólnaum lært að hata sjálfan sig.  

No comments:

Post a Comment