5.1.06

Þreytt andlit og slitnar tuggur

(grein úr Fréttablaðinu 2006)

Mikið gladdi það mig að sjá pistil Hannesar Hólmsteins í Fréttablaðinu í gær sem fjalla átt um þreytt andlit og slitnar tuggur. Í einfaldleika mínu, bjóst ég við uppgjöri Hannesar við eigin greinaskrif því jafnskjótt og ég leit þreytt andlitið sem fylgdi greininni bjóst ég við að lesa slitnar tuggur. það gekk allt eftir.

En ólíkt hinum stórkostlega Davíð Oddsyni sem góðu heilli þekkti sinn vitjunartíma hefur Hannes Hólmsteinn ekki skynjað sín endimörk og þó allir hugsandi menn séu orðnir löngu leiðir á málæði Hannesar, hamast hann sem aldrei fyrr. Greinilega farið að hitna undir kjötkötlunum á þeim bænum.

Í grein sinni setur Hannes fram sagnfræðiskýringu á skoðunarkönnun sem gerð var fyrir nokkur og samkvæmt náttúrueðli Hannesar er honum Samfylkingin hugleikin. Sagnfræði Hannesar er að sjálfsögðu rökstudd með mikilfengleika Sjálfstæðisflokksins því í greinum hans endurspeglar sá flokkur jafnan heimsmyndina. Í upphafi röksemdafærslunnar birtist ein uppáhalds slitna tugga Hannesar um að vegna forystu Davíðs Oddsonar hafi þjóðinni vegnað vonum framar. Hannes veit ekki að uppgangur síðustu ára hefur fyrst og fremst verið vegna opnunar markaða í kjölfar EES-samnings Samfylkingarinnar enda hefur Sjálfstæðisflokkurinn sýnt það á síðustu árum að hann kann lítið með hagstjórn að fara.

Þrátt fyrir ungan aldur man ég glögglega inngöngu Davíðs Oddsonar í landsmálin og þau átök innan Sjálfstæðisflokksins þegar Davíð vann formannssætið af þáverandi formanni flokksins, Þorsteini Pálssyni. þeir sem á annað borð nenntu að rökræða við mig á þessum tíma um formannsskiptin lögðu mikla áherslu á hver skemmtilegur og fyndinn maður Davíð væri, hve hann væri orðheppinn og mikill listamaður. Hann þótti stjórna af mikilli röggsemi og í stjórn borgarinnar þótti hann hafa sýnt ótrúlega framkvæmdasemi, þó margir viðurkenndu að hann hefi ekki alltaf leitað nægjanlegra sátta við hagsmunaaðila.

Því miður gat ég ekki samsamað mig þessari reynslu því ég hafði alveg misst af skemmtiþættinum Matthildi og í endursýningum á leikritinu um Bubba kóng féllu leikhæfileikar formannsins í skuggann af þeirri skoðun minni að sjónvarpsefni sem ekki var í lit var hvorki áhugavert né gott sjónvarpesefni. Hinn nýi og ungi formaður sem margir fögnuðu sem talsmanni léttleikans, nýju tímanna og sköruglegrar framgögnu verkaði á mig sem hrokafullur, sjálfsánægður og næmnislaus togarasjómaður. Ef ég hefði haft aldur og leyfi til að kjósa í þessum slag hefði ég líkt og amma mín stutt Þorstein Pálsson sem var orðvar og bar með sér það traust sem talsmenn hinna nýju og léttlyndu tíma skorti.

En sagan skrifar sig ekki alltaf eftir okkar skoðunum og í öll þessi ár hef ég þurft að hlusta á slitna tuggur Hannesar Hólmsteins um Davíð Oddson, oftar en mér er hollt. Það er því einlæg von mín að Hannes komist sem fyrst niður í Seðlabanka til að vinar síns þar sem þeir geta leikið sé saman með stýrivexti og verðbólguspár.

No comments:

Post a Comment