(Grein sem birtist í Fréttablaðinu á vordögum 2006)
Allt frá því 2003 hefur verið starfandi framtíðarhópur innan Samfylkingarinnar sem unnið hefur að stefnu flokksin í umhverfismálum. Síðsta árið hef ég unnið í hópnum að verkefninu og einmitt þessa dagana erum við að binda endahnútinn. Áherslan hefur frá upphafi verið á vönduð vinnubrögð, upplýsingaöflun og víðtækt samráð og hefur vinnan m.a. falist í að halda á annan tug samráðsfunda um allt land. Þessi vinna hefur verið bæði skemmtileg og metnaðarfull því unnið er að því að nálgast umhverfismálin á alveg nýjan hátt út frá áherslum Samfylkingarinnar á jafnrétti, lýðræði og frelsi einstaklinga.
Þar sem ég hef verið að vinna á þessu sviði hef ég á síðustu mánuðum horft með áhuga á aðra stjórnmálaflokka setja fram umhverfisstefnu sína og koma með ýmsar yfirlýsingar í umhverfismálum máli sínu til stuðnings. Í athugun minni er það niðurstaða mín að enginn íslenskur stjórnmálaflokkur geti lagt fram heildstæða og vel ígrundaða stefnu í þessum málaflokki. Það er vissulega lítið mál að setja fram umhverfisstefnu ef hún þarf ekki að vera í samræmi við önnur stefnumál eða ef umhverfismálum er ætlað að vera afgangsstærð sem stöðugt mætir afföllum þegar aðrir málaflokkar hafa verið afgreiddir. Að setja umhverfismál einan í forgang er líka einfalt því þannig þróast önnur stefnumál fyrst og fremst af einhliða, einfaldri afstöðu.
Stefna Vinstri grænna er vissulega sýnileg, en er sett fram í augljósi tomarúmi og er ekki hugað að því að samþætta hana byggðarsjórnarmiðum, stefnu í atvinnumálum eða menntamálum, svo eitthð sé nefnt. Slík viðhorf fara vel í umræðunni og hæfa fullvel flokki sem ekki hefur hug á að vera stefnumótandi í landsmálum að loknum kosniningum. Sjálfstæðisflokkurinn hefur einig tekið áhugaverða stefnu í þessum málaflokki sem birtist í því að hann styður umhverfismál svo framarlegar sem þau stangast ekki á við hagsmuni flokksins og ganga í engan hátt gegn öðrum fyrirætlunum hans. Í stjórnarsamstarfinu hefur Sjálfstæðisflokkurinn náð að koma vandræðalegum umhverfismálum yfir á bak Framsóknarflokksins sem með stefnuleysi sínu stendur stóreygður og starandi yfir þeim vandræðargangi sem umhverfismálin valda þeim.
Á næstu vikum mum Samfylkingin leggja fram heildstæða stefnu í umhverfismálum sem hefur þá sérstöðu að byggja á vel ígrunduðum tillögum til umhverfis og náttúruverndar án þess að einangra þá hugmyndafræði frá öðrum málaflokkum. Sérstaða þeirrar vinnu sem unnin er í framtíðahópnum er að rofin er sú skipting sem tíðakast hefur milli þeirra sem setja umhverfismál í forgang og þeirra sem styðja öfluga þjónustu og uppbyggingu atvinnutækifæra og menningar. Með áhersla á öfluga þjónustu og uppbyggingu samfélagsins lítur Samfylkinging á umhverfismál sem sjálfsagt heilbrigðismál og sem hluti af heilbrigðum lífsháttum verður aðgangur að umhverfinu hluti af almennum mannréttindum.
Með því að flétta saman umhverfismál og mannréttindi opnast leið til vitundarvakningar um leið og stóraukin er aðkoma almennings að umhverfismálum í víðu samhengi.
Markmiðið er því að fjarlæfjast þá hugsun að líta á umhverfismálin sem sérstakan málaflokk, hvorki sem stefnmótandi fyrir aðra afstöðu flokksins né mál sem mætir afgangi. Markmiðið er að líta á málefni umhverfisins út frá rétti manna til að lifa í heilbrigðu umhverfi og að litið sé á að ábyrgð á umhverfinu sé bæði réttur og skylda einstaklinga i lýðræðisþjóðfélagi.
Þannig upplifi ég þá metnaðarfullu vinnu sem Samylkingin hefur staðið að og vil ég fullyrða að þar sé stjórnmálaflokkur að setja fram besta grunn í umhverfismálum sem komið hefir frá stjórnmálaflokki í Íslandi.
No comments:
Post a Comment