21.1.12

Útvalin þjóð

(Birtist á Smugunni 21. janúar)

Þegar spilltir stjórnmálamenn komast til valda gera þeir allt til að skapa sjálfum sér og félögum sínum forskot, byggja undir öfl sem eru þeim sjálfum hliðholl og draga peninga og feitar stöður til sín. Allt til að halda völdum til að tryggja eigin yfirburði.

Svo eru aðrir stjórnmálamenn sem koma í stjórnmálin með þá hugsjón að byggja betra samfélag. Þeir vilja fórna sér fyrir fjöldann í trú á að mikilfengleg hugsjónin helgi að lokum meðalið. Þetta eru stjórnmálamenn sem telja að þeir séu sérstaklega útvaldir til að leiða aðra í átt að sannleikanum. Þar er allt eða ekkert.

En hvaða gagn gerir falleg hugsjón ef hún skilst ekki, getur ekki gert málamiðlanir og er svo langt frá raunveruleikanum að hún verður aldrei neitt annað en góð hugmynd.

Hrunið varð vegna þess að of margir héldu að við værum útvalin þjóð með sérstakt víkingablóð. Við hefðum sérstaka hæfileika og hefðum hlutverki að gegna meðal þjóðanna. Þess vegna var ekki hægt að gagnrýna, taka mark á gagnrýni eða skoða aðrar hliðar á málinu.

Stór hluti landsmanna hefur nú viðurkennt að þetta var tálsýn - ennþá er þó einhverjir sem telja að þeir þess megnugir að frelsa þjóðina og leiða hana inn í fyrirheitna landið - Nýja Ísland.

Það eru engar töfralausnir og sagnan hefur leitt í ljós að hetjurnar í sögubókunum voru engar hetjur - frekar réttir menn á réttum stað - fólk sem kláraði verk sem unnið hafði verið að í langan, langan tíma.

Ef á að skapa eitthvað sem hægt er að kalla Nýja Ísland þarf þolinmæði og vinnu - og það mun taka tugi ára. Það munu koma bakslög og stöðnun - en ef Íslendingar raunverulega vilja fara þá leið þá mun hún takast.

Eða kanski dóu allar góðar hugsjónir í gær - en ef ekki þarf meira til þá hafa þær hvort sem er aldrei verið þess virði.

No comments:

Post a Comment