Fyrir nokkru las ég viðtöl sem Eva Lundgren tók við þolendur og gerendur ofbeldis í norskum trúarsamfélögum. Rætt var við karla og konur í ofbeldissamböndum og reynt að varpa ljósi á hvers vegna flest pörin stóðu saman um að réttlæta ofbeldið. Í öllum viðtölunum var lýst hvernig karlinn tók sér vald til að skilgreina hvað er rétt og hvað var rangt í hjónabandinu. Konurnar gengu inn í þá hugmyndafræði, samþykktu hana og áttu erfitt með að hugsa um sjálfan sig utan hennar. Hugmyndir kvennana um sjálfa sig voru því alltaf bundnar við aðstæður og hvernig eiginmaðurinn staðsetti þær íinnan þeirra.
Í sértrúarsöfnuðinum sem Eva skoðaði var mikið valdaójafnvægi karla og kvenna. Konan var í stöðu þess bjargarlausa sem þurfti stöðugt að viðhafa ákveðna hegðun til að komast undan þeirri sektarkennd og skömm sem staða hennar í hjónabandinu skapaði.
Ég hef hugsað um þetta síðustu daga og vikur þegar ég hef hlustað á fullorðna karlmenn lýsa minningum um kynferðislega misnotkun sem þeir urðu fyrir sem börn. Í viðtölunum lýsa þeir hvernig níðingarnir taka sér vald til að skilgreina upplifun þeirra og hvernig þeir finna sig knúna til að samþykkja þá skilgreiningu. Þeir upplifa sig fasta í neikvæðum hugsunum um sjálfan sig sem þeim er ómögulegt að sleppa frá. Gerandinn viðheldur hugmyndum og fær þolendur til að staðfesta hlutverkið með því að taka við gjöfum, hlusta á hótanir og niðrandi athugsemdir. Þannig er þeirri blekkingu viðhaldið að þátttakan sé sjálfviljug.
Umræðan um þessi mál sýnir mikilvægi þess að einstaklingar taki sér vald til að skilgreina hlutverk sitt sjálfur. Mikilvægi þess að íhuga afstöðu sína og finna hlutverk sem hæfir því. Það er mikilvægt að við látum ekki öðrum að skilgreina hvernig við eigum að skilja fortíð okkar og hvernig við eigum á líta á framtíðarmöguleikana.
Þeim verður seint fullþakkað sem stigið hafa fram síðustu daga í umræðunni um kynferðisofbeldi. Fjarlægð við atburðina og fjöldi þolenda veldur því að umræðan er mjög yfirveguð og skýr. Vonandi verður umræðan til þess að við verðum öll nógu sterk til að ræða erfið mál og skilja hvernig valdaójafnvægi getur skapað óskiljanlegar aðstæður. Vonandi verður umræðan líka til þess að nógu margir verða nógu hugrakkir til að taka sér stöðu með fórnarlömbum kynferðisofbeldis og leyfa þeim að njóta vafans.
No comments:
Post a Comment