27.1.13

Hvað er almenningsálit?

Margar kenningar í félagsvísindum hafna því að til sé eitthvað sem er eðlilegt eða venjulegt. Það sem íbúar í samfélögum telja venjulegt er aðeins hluti af þeim hugmyndum sem náð hafa tökum á hugsunum fólks hverju sinni. Með tímanum breytast samfélög og ný hugmyndafræði nær yfirhöndinni – þá eru eldri hugmyndir afskrifaðar og þær nýju viðurkenndar. Þannig er almenningsálitið ekki til og allar tilraunir til að skilgreina það er aðeins hluti af stað og stund.
Sú hugmynd sem nær tökum á samfélaginu nær valdi á hugsun fólks. Með því valdi er samfélagið byggt upp og það litar tíðarandann. Þó almenningsálitið sé ekki til er alltaf til heildstæð sýn á samfélagið sem meirihlutinn deilir.
Síðustu áratugina hefur ríkjandi sýn í íslensku samfélagi verið nýfrjálshyggja sem leggur áherslu á neyslumenningu, völd peninganna, markaðslögmál og samkeppni. Mikilvægi fólks í samfélaginu er mælt í mánaðarlaunum, umhverfið er metið í  gígavöttum, líðan fólks skoðuð í ljósi hagvaxtar og velferð þjóðarinnar mæld í aukinni neyslu. Er allt til sölu fyrir rétt verð?
Til að komast framhjá valdi hugmyndanna þurfum við að skoða gagnrýnið það sem okkur sýnist í fyrstu og standast þá freistingu að samþykkja það umhugsunarlaust. Þannig er hægt að segja sig frá valdi ráðandi hugmynda og spyrja sig hvernig við viljum raunverulega hafa samfélagið.

No comments:

Post a Comment