22.1.13

Leit að gömlum tíma

Á síðustu árum hefur verið rætt um vaxandi vantraust milli einstaklinga og stofnanna í samfélaginu. Á Íslandi hefur vantraustið verið tengt við fall íslenska fjármálakerfisins og vangetu stjórnmálamanna til að koma í veg fyrir það. En vantraust og átök eru ekki aðeins í pólitíkinni og stofnunum samfélagsins þau eru einnig milli annarra hópa, milli karla og kvenna, kynslóða, ólíkra landshluta, dreifbýlis og þéttbýlis, fræðimanna og atvinnulífs. Enginn virðist tala sama tungumálið og umræður enda í stöðugum átökum, misskilningi og vonleysi.
Vantraust á stofnunum samfélagsins einskorðast ekki við Ísland. Á síðustu áratugum 20. aldar og það sem af er þeirri 21. hafa samfélagsbreytingar haft byltingarkennd áhrif á öll samfélög vesturlanda. Mikill hraði, ótrúlegar tækniframfarir og breytt gildi hafa ruglað fólk um allan heim í ríminu. Gömul gildi og hefðir hafa glatað því altæka valdi sem þau höfðu í samfélaginu og það sem er viðurkennt í einum þjóðfélagshóp virðist hlægilegt í öðrum.
Þessar alþjóðlegu breytingar hafa haft mikil áhrif á Íslandi. Samanburðarrannsóknir sýna að vegna mikilla samskipta við önnur lönd og mikla notkun fjarskipta og tölvutækni er áhrifin á Íslandi einar þær mestu í heimi. Átök á öllum sviðum í samfélagi dagsins í dag benda til þess að Íslenskt samfélag hafi ekki náð að aðlagast breytingunum.
Átök í íslensku samfélagi eiga sér flóknar og margvíslegar rætur, lausn á þeim átökum er vafalaust flókin og margbrotin. Það er þó mikilvægt að við skiljum að átökin eru ekki bundin við Ísland. Samfélagsbreytingar síðustu ár voru einfaldlega bæði byltingarkenndar og sögulega einstæðar og þess vegna verðum við að líta svo á að breytingarnar, vantraustið og átökin séu ekki varnalegt ástand. Þau eru einkenni sem hægt er að vinna með og komast út úr. Til þess þurfum við öll að draga djúpt andann, reyna að sjá samfélagið frá fleiri sjónarhornum en okkar eigin og leita leiða til að vekja á ný samstöðu um þau gildi sem við viljum lifa eftir.

No comments:

Post a Comment