(Birtist á Smugunni 2. febrúar 2013)
Kapítalismi er úrelt hugmyndakerfi sem hefur enga möguleika til að takast á við vanda nútímans. Kapítalisminn er afleiðing iðnbyltingarinnar þar sem litið var á fólk sem einingar í framleiðsluvélinni. Hegðun þess var mótuð til að auka framleiðni og peningar voru mælikvarðinn á framfarir í heiminum. Umhverfið var hráefni í framleiðsluna og til hennar var sótt það afl sem ekki var hægt að fá út úr fólkinu sjálfu. Allt fyrir skammtímagróða og hagnað eigendanna.
Í nútímanum eru mörg vandamál sem krefjast þess að boðið upp á víðara sjónarhorn í stjórnmálum en það sem kapítalistar bjóða upp á. Vaxandi fátækt í heiminum, aukin misskipting, arðrán auðlinda og mengun eru verkefni sem krefjast þess að horft sé til lengri tíma og réttlætið nái til fleiri en einstaklinga í forréttindahópum. Í yfirgangi forréttindastéttanna hefur tæknin gert það að verkum að maðurinn er orðinn meiri áhrifavaldur á umhverfið, ekki aðeins með mengun lofts og vatns, heldur með manngerðum jarðskjálftum og breytingum á veðurfari um allan heim.
Gegn kapítalisma stefnir VG sjálfbærri þróun. Sjálfbær þróun er ekki aðeins umhverfisstefna heldur djúpstæð siðferðisleg afstaða sem snertir allt samfélagið. Sjálfbær þróun byggir á því að velferð samfélaga sé háð því að íbúar þroski siðferði sitt og sameiginlega sýn þannig að hún nái ekki aðeins til eigin hagsmuna heldur sjái íbúar líf sitt í víðara samhengi. Fullþroska siðgæðisvera er ekki einungis umhugað um eigin tegund og afkvæmi á meðan hún lifir, heldur vill hún að aðrar lífverur geti búið um ókomna tíð í heilbrigðu og náttúrulegu umhverfi.
Sjálfbær þróun býður okkur nýja möguleika og ný vinnubrögð. Sjálfbær þróun er siðferðislegur rammi sem virðir fjölbreytni og leitar nýrra hugmynda til að verja hagsmuni íbúa, umhverfis og samfélags - í nútíð, fortíð og framtíð.
No comments:
Post a Comment