19.3.13

Ósýnilega höndin

Trúarbrögð eru aðferð til að skýra heimsmynd sem menn skilja ekki. Í því felst ekkert rangt. Það er margt sem er ekki skiljanlegt. Tákn og sögur auðvelda aðgang að ýmsu sem annars væri erfitt að skilja. Hugmyndir geta þannig hjálpað til við að skýra veruleikann svo að auðvelt sé að gera sér grein fyrir því hvernig má vinna með hann.
Hugmyndin um Guð byggir á því að að tilveran er óskiljanleg og ekki er alltaf hægt að reikna með því að bak við hana séu rökrænir ferlar. Það felur í sér að sífellt þarf að endurskoða hugmyndir, endurmeta heimsmyndina og skoða hvort hugmyndafræðin hæfir heimsmyndinni. Í þessum skilningi eru trúarbrögð sem fela í sér valdboð og óbreytanlegar kennisetningar óhugsandi.
Kenningin um Kapítalismann er sprottin úr jarðvegi trúarbragðanna. Hún er réttlæting þeirra ríku á eigin ríkidæmi og réttlæting á þeim lögmálum sem gera þá enn ríkari. Kapítalisminn réttlætir þá sem  safna auði og hugsa fyrst og fremst um eigin hag. Í kristnu samfélagi um miðja 18. öld var knýjandi eftirspurn eftir slíkri hugmyndafræði.
Hugmyndin um hina ósýnilegu hönd markaðarins er guðlegt lögmál þeirra sem stjórna og þeirra sem eiga peninga. Um miðja 18 öld var ómögulegt annað en að þetta tvennt færi saman.  Þetta skýrir vinsældir hugmyndarinnar því líkt og aðrar trúarsetningar var auðvelt að nota hana til að fá þá kúguðu til að sætta sig við stöðu sína í samfélaginu.
Það er umhugsunarefni  hvers vegna svo einföld og illa undirbyggð hugmyndafræði getur verið vinsæl enn í dag.

No comments:

Post a Comment