14.5.13

Hagsæld og hagvöxtur

Nýlega skilaði samráðsvettvangur um aukna hagsæld frá sér fyrstu tillögum. Tillögurnar hafa vakið sterk viðbrögð og mikla umræðu.
Hópurinn átti að gera tillögur að aukinni hagsæld. Í kynningu á tillögunni leggur hópurinn að jöfnu hagsæld og hagvöxt. Tillögurnar eiga að stuðla að auknum hagvexti og að Ísland færist ofar á lista yfir verga landsframleiðslu á mann meðal OECD ríkja.
Margir bundu vonir við að samráðsvettvangurinn yrði aðeins framsæknari í hugmyndum sínum.
Núverandi starfsstjórn skipaði samráðsvettvanginn. Á kjörtímabilinu gafa stjórnin út áherslur sínar í hagsjórn í skýrlsu um græna hagkerfið sem bar undirtitilinn SJÁLFBÆR HAGSÆLD – SAMFÉLAG TIL FYRIRMYNDAR.  Það hefði verið eðlilegt að samráðshópurinn byggði á slíkum hugmyndum um hagsæld.
Sjálfbær samfélagsleg hagsæld er ekki hugsuð út frá peningum og hagvexti heldur út frá einstaklingum og samfélagi. Þar er hugsað um að hámarka almannahag, bæði þess samfélags sem nú er til staðar og þess sem mun nýta landið í framtíðinni. Þannig mætti fjalla um hvernig við getum nýtt best samfélagið okkar og  í hverju raunveruleg  lífsgæði samfélagsins eru fólgin.
Hagsæld er víðtækt hugtak og merkir alls ekki það sama og hagvöxtur. Hagvöxtur getur verið einn mælikvarði á hagsæld en getur aldrei náð til allra hluta hagsældar ekki frekar en ekki hitastig er fullnægjandi lýsing á veðurfari.
Hagvöxtur mælir ekki vellíðan, heilsu, jafnræði, réttlæti, frið, frelsi, hamingju, sjálfbærni, framfarir eða öryggi í samfélaginu. Samt eru þetta allt þættir sem ættu að skipta máli í hagsæld okkar.
Í hagkerfinu er leitast við að hámarka gæði. Það skiptir máli hvaða gæði er verið að hámarka. Það sem á að liggja til grundvallar hagsæld í þróuðu samfélagi er að hámarka velferð í samfélaginu.
Þá er hagsæld falin í velferð allra einstaklinga í samfélaginu.
Hagsæld gæti líka verið siðferðilegt atriði í samfélaginu og gæti þá falið í sér spurningar eins og : Hvaða líf er þess virði að því sé lifað? Hvenig getum við sem samfélag ráðið ráðum okkar sem best?
En þetta eru aðeins vangaveltur því ég hef ekki komist að því á hverju sú hagsæld byggir sem samráðshópurinn ætlaði að auka og hvaða  gildi það hefur fyrir okkur hvert og eitt.

No comments:

Post a Comment